Ásberg fasteignasala kynnir í einkasölu, 4ra herbergja íbúð á 1 hæð við Suðurgötu 29, í Suðurnesjabæ með sérinngang.
4 herb., 99,4 fm íbúð á neðri hæð (kjallara) í tvíbýlishúsi við Suðurgötu í Sandgerði.
Íbúð er skráð 95,2 fm og geymsla 4,2 fm, alls 99,4 fm. Eign sem þarfnast lagfæringar utan sem innan.
Lýsing eignar:
Lítil forstofa. Gangur. Hol. Lítið baðherbergi, gluggalaust, flísar á gólfi, sturtuklefi.
Eldhús með eldri innréttingu og flísum á gólfi. Stofa. Þrjú herbergi.
Gólfefni eru harðparket og flísar sem þarfnast endurnýjunar við.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara með efri hæðinni, ekki full lofthæð.
Húsið þarfnast mikilla lagfæringa meðal annars á múr, gluggum og þaki. Þakrennur og niðurföll vantar. Útidyrahurð er léleg.
Rakaskemmdir víða í eign, m.a. í herbergi, forstofu og eldhúsi.
Sprungur og los í nokkrum gólfflísum. Harðparket á íbúð er lélegt/ónýtt.
Ytra gler brotið í nokkrum rúðum. Skemmdir á innihurðum. Rakaskemmdir á vaskaskáp í eldhúsi.
Það eru rakaskemmdir víða í húsinu.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27, Reykjanesbæ.
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837,
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837,
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skolp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að huga að við kaup Stimpilgjald vegna þinglýsingar kaupsamnings er 0,4-1,6% af fasteignamati hins keypta auk kr. 3.800.- fyrir þinglýsingu kaupsamnings.
Ef kaupandi tekur lán hjá bankastofnun / íbúðalánasjóði. Lántökugjald er 0,5-1% af höfuðstól hjá Íbúðalánasjóði en er annars breytilegt eftir lánastofnunum en ávallt greiðast kr. 3.800.- fyrir þinglýsingu á hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölunnar er kr. 69.900.- krónur m/ vsk sem greiðist við undirritun kaupsamnings.