Fasteignaleitin
Skráð 17. okt. 2024
Deila eign
Deila

Sólvallagata 47

EinbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
242.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
107.900.000 kr.
Fermetraverð
444.948 kr./m2
Fasteignamat
87.550.000 kr.
Brunabótamat
100.800.000 kr.
Elínborg Ósk Jensdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1966
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2090600
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
sagt i lagi
Raflagnir
sagt í lagi
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað járn á þaki
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
sólpallur og pottur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Sólvallagötu 47, birt stærð eignarinnar er samtals 242.5 fm. Húsið stendur á 887 fm eignarlóð.

Spennandi tveggja íbúða einbýlishús. Eignin er staðsett miðsvæðis í Reykjanesbæ. Stutt í grunn og leikskóla ásamt framhaldsskóla. Íþróttamannvirki í stuttu göngufæri ásamt verslun og þjónustu í Krossmóa.
Heildar stærð eignar er 242,5 fm þar af er íbúðarrými  efrihæðar er 143,6 fm. Á neðri hæð er innbyggður bílskúr 39,5 fm, og íbúðarrými 59,6 fm alls 242,5 fm. Bílskúr er í dag ásamt neðri hæð innréttaður sem 3ja herbergja íbúð sem tilvalin er til útleigu. Góðar leigutekjur. Sér inngangur og séraðkoma er í báðar íbúðirnar en auðvelt er að opna á milli og sameina þær í stóra fjölskyldueign.

*** Gluggar endurnýjaðir að mestu.
*** Járn á þaki var endurnýjað og þak styrkt árið 2019
*** Sér íbúð er á neðri hæð, auðvelt að breyta í einbýli aftur

*** Heitur pottur og skjólgóður sólpallur
*** Geymsluskúr og gróðurhús á lóð
*** Sólhús við andyri sem gefur skemmtilega stemningu
*** Rúmgott alrými: Eldhús endurnýjað 2019 og stofa með nýlegu parketi og nýlegum loftaplötum
*** Möguleiki er að bæta við herbergi á efrihæð
*** Lokað veitukerfi og bílahleðslustöð
*** Góð bílastæði við eignina með snjóbræðslu, beggja vegna hússins



Efri hæð hússins skiptist í Andyri / Sólstofu, þvottahús með geymslu, eldhús með eyju, stóra stofu / borðstofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi.
Inngangur um sólskála á efri hæð. Flísar á gólfi. Þægilegt íverurými.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu. Geymsla er inn af þvottahúsi.
Eldhús með nýlegri innréttingu með eyju, gólfhiti er í eldhúsi. Opnir hyrsluskápar.
Stofa og borðstofa í einu rými, nýjir gluggar og gler verða í allri stofunni.  
Baðherbergið er flísalagt, baðkar með sturtu aðstöðu, salerni og innrétting. Endurnýjað ca 1990
Hjónaherbergi með fataherbergi innaf, parket á gólfi.
Barnaherbergi með parket á gólfi.

Stigi er frá holi niður í neðrihæð. Lokað er á milli íbúðanna með léttum vegg. Þar væri hægt að stækka vistaverur efrihæðar að hluta eða sameina i eitt hús.

Neðri hæðin skiptist í Andyri, geymslu, stofu, eldhús, hol, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Sérinngangur er í íbúð neðrihæðar.
Rúmgott herbergi við forstofu.
Eldhús og stofa er með parket á gólfi. 
Millirými sem er tilvalið sem sjónvarpshol inn af þvi er svefnherbergi með parket og skápum.
Baðherbergi er flísalagt með vask, salerni og sturtu. Þvottaaðstaða á baði.

Lóð er frágengin og girt að hluta til við lóðarmörk, Hellulögð bílaplön, stallaðar verandir með heitum potti með stýringu sem nýtir affall eignar að hlutatil, aflokaður gasgrill skúr. Snjóbræðslukerfi. Geymsluskúr klæddur með bárujárni er á lóð ásamt gróðurhúsi.

Nánari upplýsingar veita:

Elínborg Ósk Jensdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 823-1334, tölvupóstur elinborg@allt.is.
Páll Þorbjörnsson löggiltur fasteignasali í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is
Unnur Svava Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali i síma 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.is


 
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/04/201530.550.000 kr.26.500.000 kr.242.5 m2109.278 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparlaut 26
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 26
Asparlaut 26
230 Reykjanesbær
190.1 m2
Fjölbýlishús
523
623 þ.kr./m2
118.500.000 kr.
Skoða eignina Melteigur 8
Bílskúr
Skoða eignina Melteigur 8
Melteigur 8
230 Reykjanesbær
237 m2
Einbýlishús
615
455 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurvellir 24
Skoða eignina Norðurvellir 24
Norðurvellir 24
230 Reykjanesbær
184 m2
Raðhús
413
541 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 24
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 24
Asparlaut 24
230 Reykjanesbær
190.5 m2
Fjölbýlishús
523
622 þ.kr./m2
118.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin