Fasteignaleitin
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 14. ágúst 2026

Sunnusmári 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
177.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
845.937 kr./m2
Fasteignamat
126.950.000 kr.
Brunabótamat
108.300.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
5. hæð af 7
Garður
Svalir
Bílastæði
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2519950
Landnúmer
226233
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt í sölu! Stórglæsileg 4 herb. íbúð með stórum svölum með svalalokun og sérstæði í bílakjallara AUK 2 herb. íbúðar með svölum inn í inngarð hússins.

Spennandi eign fyrir stóra fjölskyldu, fjárfesta til útleigu eða þá sem vilja geta leigt út aukaíbúð frá sér!


Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar glæsilega og vandaða 177,2 fermetra íbúð á 5. hæð (506) í fallegu nýju lyftuhúsi byggðu af ÞG Verk við Sunnusmára 7 í Kópavogi. Eignin skiptist í tvær íbúðir: Annars vegar í 4ra herb. íbúð með glæsilegu eldhúsi í opnu rými, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottaherbergi, forstofu og svölum með svalalokun. Hins vegar í 2ja herb. íbúð með eldhúsi í alrými, svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt svölum. Auk þess fylgir eigninni sérmerkt stæði í bílakjallara og rúmgóð 10,0 fermetra geymsla í kjallara. Lyfta er í húsinu sem gengur beint niður í geymslugang og bílakjallara.

Húsið, sem er byggt af ÞG Verk, er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðvesturs sem verður fullfrágenginn.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Nánari lýsing:

Sameiginleg forstofa er fyrir báðar íbúðir með fallegu harðparketi, skápum og glugga inn í inngarð hússins.

Stærri íbúð: Skiptist í forstofu, eldhús með eyju í alrými með stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á rúmgóðar svalir með svalalokun og timbur svalagólfi. Sérgeymsla og sérstæði í bílakjallara.
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá GKS. Glæsilegur steinn á borðum og stórri eldhúseyju sem hægt er að sitja við. Bakaraofn, spansuðu helluborð, innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél og undirfelldur vaskur. Lýsing undir efri skápum.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, innréttingu við vask, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, góðri innréttingu, tenglum fyrir þvottavél/þurrkara og hillum.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skáðum og glugga.
Svalir I: Eru rúmgóðar með svalalokun og fallegu viðar svalagólfi.

Minni íbúð: Skiptist í forstofu, eldhús í alrými, svefnherbergi og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Svalir sem snúa inn í inngarð hússins með timbur svalagólfi.
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skáp.
Stofa/eldhús: Er staðsett í einu rými, með harðparketi á gólfi, gluggum til vesturs og austurs. Falleg innrétting frá GKS með innbyggðum kæliskáp með frysti, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni og spansuðu helluborði. 
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga. 
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og tenglar fyrir þvottavél/þurrkara.
Svalir II: Með viðar svalagólfi og snúa inn í skjólgóðan inngarð hússins.

Bílastæði: Er sérmerkt í bílakjallara með rafhleðslustöð.
Geymsla: Er staðsett í geymslugangi og er 10,0 fermetrar að stærð.

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.

Byggingaraðili er ÞG Verk sem eru með yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 


Aðalhönnuður hússins: Er teiknistofan ARKIS ehf. Hanna verkfræðistofa ehf. sér um hönnun burðarvirkis, Teknis ehf. um hönnun lagna og Lumex um raflagnahönnun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/05/202483.450.000 kr.127.900.000 kr.177.2 m2721.783 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2023
Fasteignanúmer
2519950
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
C2
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.950.000 kr.

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 504
Bílastæði
Opið hús:15. ágúst kl 13:00-13:30
Jöfursbás 3B íb 504
112 Reykjavík
165.9 m2
Fjölbýlishús
313
783 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (301)
Opið hús:18. ágúst kl 17:00-18:00
Skjámynd 2026-06-05 135054.png
Vorbraut 14 (301)
210 Garðabær
130.3 m2
Fjölbýlishús
423
943 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 15 (602)
Bílastæði
Efsta hæð
Breiðhöfði 15 (602)
110 Reykjavík
182.8 m2
Fjölbýlishús
523
1258 þ.kr./m2
229.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 303
Lautargata 5 íb. 303
210 Garðabær
139.3 m2
Fjölbýlishús
413
961 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin