Fasteignaleitin
Skráð 14. apríl 2026

SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares

Nýbygging • EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
224 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
85.500.000 kr.
Fermetraverð
381.696 kr./m2
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
295130426
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *DRAUMURINN UM AÐ BÚA Á GOLFVELLI ER NÆR EN ÞÚ HELDUR* *GLÆSILEG NÝ EINBÝLIHÚS MEÐ ÚTSÝNI YFIR SERENA GOLFVÖLLINN* *3 SVEFNH. OG 2 BAÐH.* *BÍLASTÆÐI Á LÓÐ *SÉR SUNDLAUG* *KJALLARI* *GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, STRÖND OG SKEMMTILEGAN SPÆNSKAN BÆ*

Glæný, vönduð og rúmgóð einbýlishús á einni hæð á frábærum stað í Los Alcazares við Serena golfvöllinn. Göngufæri á fallega strönd og gamla bæinn í Los Alcazares, þar sem svo sannarlega er sál og sjarmi, bátahöfn og skemmtilegt "promenaðe" meðfram ströndinni. Einnig eru fleiri golfvellir í nágrenninu, t.d. Roda Golf, Mar Menor golfvöllurinn, Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og fleiri. Um 60 mín akstur til Alicante, og ca. 10 mín. akstur til Cartagena sem er skemmtileg spænsk borg. Fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum í göngufæri.

Allar upplýsingar gefa
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is sími 0034 615 112 869 
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is sími 00354 893 2495 


Rúmgóð og vel hönnuð hús, 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými. Stórar þaksvalir og góður garður. Undir flestum húsunum er jafnframt stór kjallari.
Einkasundlaug og bílastæði á lóð. 

Verð frá 589.900 evrum eða 85.500.000 ISK (miðað við gengi 1Evra=145ISK)

Eftirfarandi hús eru til sölu:
362 fm lóð. 215 fm eign og 54 fm þaksvalir. 115 fm kjallari.
263 fm lóð. 224 fm eign og 54 fm þaksvalir.124 fm kjallari.
302 fm lóð. 233 fm eign og 54 fm þaksvalir. 124 fm kjallari.
322 fm lóð. 215 fm eign og 54 fm þaksvalir.
475 fm lóð. 205 fm eign og 54 fm þaksvalir. 105 fm kjallari.

Húsin verða tilbúin til afhendingar frá desember 2027 til mars 2028.

Einstakt tækifæri til að eignast fallega eign í fyrstu línu við golfvöll.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, einkasundlaug, útsýni, air con, bílastæði, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Los Alcazares, Serena golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
295130426

Myndir (10)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnabraut 2
Skoða eignina Tjarnabraut 2
Tjarnabraut 2
260 Reykjanesbær
91.3 m2
Fjölbýlishús
413
760 þ.kr./m2
69.400.000 kr.
Skoða eignina Laufengi 122
Opið hús:22. apríl kl 18:00-18:30
Skoða eignina Laufengi 122
Laufengi 122
112 Reykjavík
106.9 m2
Fjölbýlishús
413
725 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 3 íb. 202
Baughamar 3 íb. 202
221 Hafnarfjörður
96 m2
Fjölbýlishús
32
795 þ.kr./m2
76.300.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 49
Bílskúr
Skoða eignina Drekavellir 49
Drekavellir 49
221 Hafnarfjörður
264.5 m2
Einbýlishús
75
642 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin