Falleg og björt 4ra herbergja íbúð á 1. hæð við Naustavör 11 í Kópavogi. Eignin er sérlega vel skipulögð með gólfhita í öllum rýmum, rúmgóðum svölum. Vinsæl staðsetning í fjölskylduvænu umhverfi á Kársnesi.
- Sér merkt bílastæði
- Þrjú svefnherbergi
- Golfhiti
Tinna Bryde A.Lgf í síma
660-5532 eða tinna@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgott andyri með fataskáp.
Eldhús: Bjart rými með innréttingum frá Brúnás, AEG tækjum og fallegu útsýni yfir
Nauthólsvíkina.
Stofa og borðstofa: Opið rými með útgengi á stórar svalir.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi með fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt með gólfhita, upphengdu salerni og sturtu.
Þvottaherbergi: Innan íbúðar með góðri innréttingu.
Geymsla: Mjög rúmgóð geymsla (15,9m
2)Sameign: Sérlega snyrtileg með hjóla- og vagnageymslu. Lóðin er vel hirt og til fyrirmyndar.
Umhverfi og staðsetning:Eignin er staðsett í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi á Kársnesi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og útivist. Líflegt umhverfi í kringum smábátahöfnina með göngustígum, útisvæðum og fallegri strandlengju. Ný brú og framkvæmdir í grennd munu bæta aðgengi og umhverfi enn frekar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.