Fasteignaleitin
Skráð 22. júlí 2026

Pósthússtræti 3

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
128.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.800.000 kr.
Fermetraverð
713.287 kr./m2
Brunabótamat
71.750.000 kr.
Byggt 2006
2. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
228019012
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Karl Jónsson löggiltur fasteignasali kynnir: Um er að ræða glæsilega íbúð í fallegu og vönduðu fjölbýlishúsi að Pósthússtræti 3, ásamt sérstæði í bílgeymslu. Íbúðin er á annarri hæð og er íbúðin mjög vel staðsett í húsinu. Það er mikið og fallegt útsýni úr íbúðinni. Stærð íbúðarinnar 120,7 fm. ásamt sérgeymslu á jarðhæð sem er 8 fm., þannig að heildarstærð er 128,7 fm. Útgengt er út á yfirbyggðar svalir úr stofu. Svalirnar eru lokaðar með vönduðum svalalokunarbúnaði, stærð svalanna er 13,3 fm. Gólfhiti er í íbúðinni. Með íbúðinni fylgir sérstæði í bílageymslu, einnig er rúmgóð sameiginleg geymsla/hjólageymsla á jarðhæð. Sameign er snyrtileg og vel við haldið. Fjölbýlishúsið er mjög vel staðsett við sjóinn og í fallegu umhverfi. Lóðin er stór og vel frágengin, næg bílastæði. ATH. EINNIG ER MÖGULEGT AÐ LEIGJA ÍBÚÐINA. 

Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. 


Íbúðin skiptist þannig:
Anddyri, hol, tvö svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottahús/geymsla, stórt opið eldhús, borðstofa, stofa, lokaðar svalir.   

Lýsing:
Komið er inn í rúmgott anddyri með parketi á gólfi og góðum vönduðum skápum. Frá anddyri er gengið inn í hol. Frá holinu er gengið inn í tvö rúmgóð svefnherbergi og í endanum er rúmgott baðherbergi með sturtu. Frá holi er gengið inn í rúmgott fallegt eldhús með eyju og fallegri innréttingu. Borðstofan er í opnu rými við eldhúsið og stofuna. Stofan er stór og rúmgóð. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir. Sameiginlegur bílakjallari, góð þrif aðstaða fyrir bíla er í bílageymslu, eitt bílastæði í bílgeymslu fylgir íbúðinni. Bílgeymslan er mjög rúmgóð, en engar súlur eru í bílgeymslunni, þannig að það er mjög auðvelt að athafna sig. Búið er að sitja upp hleðslustöð við bílastæðið.

Nánari lýsing:
Anddyri, parket á gólfi, stór vandaður fataskápur.
Þvottaherbergi/geymsla, flísar á gólfi, ný vönduð innrétting með skolvaski.
Hol, parket á gólfi.
Stofa og borðastofa, parket á gólfi, hurð úr stofu út á yfirbyggðar svalir með glæsilegu útsýni.
Svalir, yfirbyggðar 13,3 fm. svalir ( fm. ekki skráðir með í stærð eignar).
Eldhús, parket á gólfi, vönduð innrétting með eyju, granít borðplata á eyju. Stór tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúðinni.
Hjónaherbergi, parket á gólfi, stór vandaður fataskápur.
Svefnherbergi, parket á gólfi, vandaður fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, innrétting, sturta.
Geymsla, sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, geymslan er 8 fm. að stærð.
Bílastæði, sameiginlegur bílakjallari, góð þrif aðstaða fyrir bíla er í bílageymslu, eitt bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni. Búið er að sitja upp hleðslustöð við bílastæðið.

Hér er um að ræða glæsilega íbúð í fallegu og vönduðu fjölbýlishúsi ásamt sérstæði í bílgeymslu. Íbúðin er á annarri hæð og er íbúðin mjög vel staðsett í húsinu, það er mikið og fallegt útsýni úr íbúðinni. Stutt er í allar helstu verslanir og þjónustu.

Fyrir nánari upplýsingar og til að bóka skoðun hafið samband við Karl Jónsson hdl. löggiltur fasteignasali í síma 896-2822 eða netfang: karl@logmark.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Karl Jónsson hdl. Löggiltur fasteignasali

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engjadalur 2
Efsta hæð
Skoða eignina Engjadalur 2
Engjadalur 2
260 Reykjanesbær
119.8 m2
Fjölbýlishús
413
538 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Austurberg 16
Bílskúr
Skoða eignina Austurberg 16
Austurberg 16
111 Reykjavík
153.9 m2
Fjölbýlishús
413
487 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Huldudalur 31
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Huldudalur 31
Huldudalur 31
260 Reykjanesbær
157.5 m2
Raðhús
514
679 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Huldudalur 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Huldudalur 17
Huldudalur 17
260 Reykjanesbær
172.5 m2
Parhús
514
521 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin