Fasteignaleitin
Skráð 4. jan. 2026

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
155 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
63.000.000 kr.
Fermetraverð
406.452 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
100040126
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝTT Í SÖLU*-*FLOTTAR ÍBÚÐIR  Á FRÁBÆRUM STAÐ*

Glæsilegar og vel hannaðar nýjar íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum á Las Colinas golfsvæðinu. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með góðu útisvæði til suð-austurs, miðhæðum með góðum svölum, og penthouse með stórum svölum ásamt sér þaksvölum.  Sér sundlaugargarður með góðri sameiginlegri aðstöðu, sér stæði í bílakjallara og geymsla. 
Rúmgóðar íbúðir,  tvö eða þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu. Stærri íbúðum fylgir einnig gestasnyrting.
Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
Lengi hefur verið beðið eftir íbúðum á þessum vinsæla stað. Þessar íbúðir voru að koma í sölu, og því hægt að velja góðar íbúðir, áður en þær seljast upp.


Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. GSM 0034 615 112 869,


Lýsing:
Þessar frábæru íbúðir eru í Limonero,  einum vinsælasta staðnum á Las Colinas. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Góðar svalir á móti suð-austri. 

Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður.  Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi og úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. Ennfremur hafa íbúar Las Colinas aðgang að glæsilegum strandklúbbi við ströndina í Dehesa de Campoamor.

Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Góður kaupauki fylgir með, hafið samband og kynnið ykkur málið.

Margir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.  La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Dehesa de Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

Verð miðað við gengi 1 Evra=145ISK.
Íbúð með 2 svefnh. + 2 baðh. 
Verð frá 435.000 Evrum (ISK 63.000.000) + kostn. við kaupin
Íbúð 118 fm
Svalir 37 fm
Samtals 155 sérafnotafm.
Auk þess sér bílastæði í bílakjallara ásamt sér geymslu.

Einnig eru á sama stað í boði Íbúðir með 3 svefn. + 2 baðh.+ gestasnyrtingu, stæði í bílakjallara ásamt sér geymslu:
Verð frá 595.000 evrur (ISK 86.200.000ISK) + kostn. við kaupin.

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sameiginlegur sundlaugargarður, falleg græn svæði og sameiginleg aðstaða skapa rólegt og fágað andrúmsloft – kjörið fyrir þá sem leggja áherslu á lífsgæði, næði og gæði.
Íbúðirnar eru hannaðar af ADORAS Atelier, arkitektastofu sem sérhæfir sig í nútímalegri, sjálfbærri og hagnýtri byggingarlist, þar sem lýsing, efnisval og landslag skipa lykilhlutverk. Innanhússhönnun er í höndum Silviu Bellot, stofnanda Mediterranean Nomad í Jávea, sem sameinar miðjarðarhafsstíl, náttúruleg efni og hlýja tóna í tímalausri og notalegri heild.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
100040126
Fasteignanúmer
100040126

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háteigur 12
Skoða eignina Háteigur 12
Háteigur 12
230 Reykjanesbær
79.3 m2
Fjölbýlishús
312
554 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnargata 29
Bílastæði
Skoða eignina Hafnargata 29
Hafnargata 29
230 Reykjanesbær
162.8 m2
Fjölbýlishús
211
Fasteignamat 60.550.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hafnargata 23
Bílastæði
Skoða eignina Hafnargata 23
Hafnargata 23
230 Reykjanesbær
156 m2
Fjölbýlishús
312
497 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Skoða eignina Hafnargata 20
Skoða eignina Hafnargata 20
Hafnargata 20
230 Reykjanesbær
96.2 m2
Fjölbýlishús
412
602 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin