Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Selvogsbraut 3b, 815 Þorlákshöfn:Um er að ræða einstaklega fallega innréttað og mjög mikið endurnýjað miðjuraðhús á góðum stað í hjarta Þorlákshafnar. Húsið er 3ja herbergja, samtals 130,5 fm. að stærð og þ.a. er íbúðarhluti 103,6 og innbyggður bílskúr 26,9 fm. Aukin lofthæð er í öllum rýmum með innfelldri lýsingu í loftum í stofu, eldhúsi og holi. Góð aðkoma er að húsinu og á lóð eru tveir sólpallar og innkeyrsla er hellulögð.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXSkipulag eignar er, forstofa, borðstofa / stofa, hol, 2 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr með stóru geymslulofti sem ekki er inn í heildarfermetrafjölda eignarinnar.
EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Lýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með hvítum
fataskáp.
Stofa / borðstofa: Í alrými er
björt og opin stofa, parket á gólfi.
Hol: Parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými með hvítri fallegri innréttingu, bakaraofn, spanhelluborð og viftu, eyja með skúffum og hægt er að sitja við hana, gert er ráð fyrir ljósi ofan við eyju, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með hvítum fataskápum, útgengi út á baklóð (austur), parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott barnaherbergi með hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Stórt baðherbergi með hvítri innréttingu, speglaskápar með ljósum, walk-in sturta með innbyggðri sturtu og blöndunartækjum, handklæðaofn, upphengt salerni, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Með hvítri innréttingu, vinnuborð með vask, tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi.
Bílskúr / geymsla: Bílskúrinn er 26,9 fm. Innkeyrsluhurð með sjálfvirkur bílskúrshurðaopnari, gönguhurð og innangengt er í bílskúr úr forstofu, upptekið loft er í skúrnum og búið að setja upp stórt geymsluloft sem ekki er inn í heildarfermetrafjölda, inn af bílskúr er rúmgóð geymsla, tvö tengibox eru undir millilofti t.d. fyrir ljós við vinnuborð, epoxy á gólfi.
Lóð: Að framan er rúmgóður suðvestur sólpallur með innstungum og ljósum, á pallinum er rafhleðslustöð sem fylgir með, ruslatunnuskýli fyrir 3 tunnur og útigeymsla innbyggð í sólpallinn, hellulögð innkeyrsla með hitalögn (lokað kerfi) með plássi fyrir allt að 4-5 bíla. Á baklóð er austur sólpallur og þökulögð lóð.
Húsið: Húsið er steypt úr viðhaldsfríum forsteyptum einingum með steináferð. Gólfhiti er alrými og holi.
Endurnýjun á húsinu að innan: Búið er að endurnýja nánast allt í húsinu að innan m.a. skipta um einangrun í veggjum og lofti, endurnýja klæðningu á milliveggjum og loftklæðningu, rafmagn var endurnýjað að mestu og rafmagnstafla yfirfarin, baðherbergi var allt endurnýjað og allar innréttingar, eldhústæki og gólfefni að undanskildri forstofu og bílskúr/geymslu, allar innihurðar eru nýjar.
Innréttingar (Nettoline) og eldhústæki (ELBA) eru frá Fríform, Parket er harðparket frá Birgisson, Innihurðir og eldvarnahurðir eru frá Birgisson, Flísar eru frá Álfaborg og sólbekkir frá Fanntófell.
Hér er um að ræða einstaklega glæsilega og mikið endurnýjaða eign á góðum stað miðsvæðis í Þorlákshöfn.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita: Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.