Fasteignaleitin
Skráð 6. júní 2025

Þinghólsbraut 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
190 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
164.900.000 kr.
Fermetraverð
867.895 kr./m2
Fasteignamat
143.500.000 kr.
Brunabótamat
90.850.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2066204
Landnúmer
116462
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Rafmagn yfirfarið og ný tafla 2017
Frárennslislagnir
Endurnýjað og yfirfarið 2022
Gluggar / Gler
Móða í glerjum
Þak
Þak byggt yfir flatt þak 1994
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Upphitun
Sérhiti. Gólfhita hefur verið stýrt handvirkt við lagnagrind
Inngangur
Tveir inngangar
Kvöð / kvaðir
Afsal, sjá skjal nr. 441-C-010724/2018
Lóðarleigusamningur, sjá skjal nr. 441-D-009260/2018 - 753 fm leigulóð til 50 ára frá 1. ágúst 2018
Teikningum ber ekki saman við innra skipulag. Búið að opna milli skála/hols og eldhúss.

Nokkar lausar flísar td. í eldhúsi. Komin er móða í einhver gler. 
FASTMOS kynnir: Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð ásamt sérstæðum bílskúr við Þinghólsbraut 8 í Kópavogi. Eignin er skráð 190,0 m2 þar af íbúð 146,0 m2 og bílskúr 44,0 m2. Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahús. Sérstæður bílskúr stendur við húsið. Húsið stendur á 753 m2 gróinni og fallegri  lóð. Timburverönd til suðurs með skjólgirðingu. Rúmgott hellulagt bílaplan með snjóbræðslu (sem á eftir að tengja). Spennandi eign á vinsælum stað á Kársnesi í vesturbæ Kópavogs. Stutt í alla helstu þjónustu og vinsæl útivistarsvæði. 

Helstu framkvæmdir samkvæmt seljanda: 1994: Þak byggt yfir flatt þak. Húsið klætt að utan. 2006: Bílskúr klæddur og ný bílskúrshurð. 2017: Hiti settur í gólf, skipt um gólfefni á öllu húsinu, baðherbergi endurnýjuð, eldhús endurnýjað. Nýjar innréttingar á baði og í eldhúsi frá Ikea. Laus skápur í hjónaherbergi fylgir húsinu. Sturta, salerni, handlaugar og blöndunartæki koma frá Tengi. Rafmagn yfirfarið og tafla endurnýjuð. 2022: Jarðvegsskipti, hellulögn, hitabræðslurör lögð í plan en eru ótengd. Lagnir endurnýjaðar úti, skipt um skólp, ný kaldavatnslögn tengd og heitavatnslögn yfirfarin.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Hol er með flísum á gólfi. Úr holi er opið inn í stofu og borðstofu, eldhús og svefnherbergisgang.
Stofa og borðstofa er björt með flísum á gólfi. Í miðju rýminu er arinn og hlaðinn múrsteinsveggur. 
Eldhús er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með góðu skápa- og skúffuplássi. Blástursofn og örbylgjuofn frá AEG, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og ísskáp við hlið innréttingar.
Þvottahús með stórum handklæðaofni er inn af eldhúsi. Útgengt í bakgarð og að bílskúr.
Svefnherbergisgangur er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með flísum á gólfi. 
Svefnherbergi 3 er með flísum á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Flísar eru á veggjum að hluta. Góð innrétting með handlaug, vegghengt salerni og "walk-in" sturta með glerskilrúmi. Handklæðaofn er gegnt sturtunni. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Forstofa er með flísum á gólfi. Inn af forstofu er gengið inn í gestasnyrtingu og svefnherbergi.
Svefnherbergi 4 er inn af forstofu með flísum á gólfi. Rýmið er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Gestasnyrting er inn af forstofu með flísum á gólfi og veggjum að hluta, handlaug og vegghengdu salerni.
Bílskúr er skipt upp í bílskúr og geymslu með skilrúmi. Rýmið er ófrágengið að hluta.
Bílaplan er hellulagt og búið er að leggja fyrir snjóbræðslu sem á eftir að tengja.

Verð kr. 164.900.000
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/01/201341.900.000 kr.40.000.000 kr.190 m2210.526 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1967
44 m2
Fasteignanúmer
2066204
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.500.000 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Friggjarbrunnur 35
3D Sýn
Bílskúr
Friggjarbrunnur 35
113 Reykjavík
233.3 m2
Parhús
623
600 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngmói 16
Bílskúr
Skoða eignina Lyngmói 16
Lyngmói 16
260 Reykjanesbær
255.2 m2
Einbýlishús
815
662 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Akurgerði 16
Bílskúr
Skoða eignina Akurgerði 16
Akurgerði 16
190 Vogar
230.2 m2
Einbýlishús
614
404 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin