Fasteignaleitin
Skráð 3. jan. 2025

SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
167 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
75.700.000 kr.
Fermetraverð
453.293 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
124120626
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á FRÁBÆRUM STAÐ* -*STUTT Í VERSLANIR OG ÞJÓNUSTU*
ÞÍN DRAUMAEIGN Á SPÁNI, ÞAR SEM SÓLIN SKÍN Á ALLA

Falleg, björt og vel hönnuð einbýlishús á einni hæð með lokuðum einkagarði og einkasundlaug í DONA PEPA , um 30 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Flott hönnun. Góð verönd  framan við húsið. Lokaður einkagarður með einkasundlaug. Góðar þaksvalir með glæsilegu rými.
Frábær staðsetning í göngufæri við verslanir og veitingastaði og hinn vinsæla "Laugaveg" í Ciudad Quesada.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869.
  

Nánari lýsing:
Komið er inn í hol sem tengir saman rými hússins. Stofa, borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Gott útgengi út á verönd og garðinn. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta. Þvottahús.
Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Gólfhiti.
Þakverönd yfir öllu húsinu.
Frábær sér garður með einkasundlaug, góðri grillaðstöðu og sólarverönd.
Bílastæði inni á lokaðri lóð.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Hér er um að ræða glæsilega hannaðar lúxuseignir á frábæru verði og vel staðsettar á hinu vinsæla Dona Pepa/Ciudad Quesada svæði. Einstakt tækifæri fyrir fólk sem vill njóta lífsins.

Verð miðað við gengi 1Evra=138ISK
549.000 evrur (ISK. 75.700.000) + kostn. við kaupin.
Húsin eru til afhendingar 15 mán. frá kaupum.
Húsin eru afhent fullbúin fallegum húsgögnum og heimilistækjum sem eru innifalin í verðinu þannig að ekkert er annað en að flytja inn og byrja að njóta frá fyrsta degi.

Húsið er 107 fm
Verönd 10 fm
Þakverönd 50 fm
Samtals 167 fm.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá traustum og öruggum byggingaraðila með áratuga reynslu. Hafið samband og bókið einkaviðtal.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Ciudad Quesada, Dona Pepa,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (69)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Las Colinas
Skoða eignina Las Colinas
Las Colinas
Spánn - Costa Blanca
Einbýlishús
423
143.280.000 kr.
Skoða eignina Klapparstígur 7
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Klapparstígur 7
Klapparstígur 7
260 Reykjanesbær
172,3 m2
Einbýlishús
514
540 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Skoða eignina Garðbraut 76
Bílskúr
Skoða eignina Garðbraut 76
Garðbraut 76
250 Garður
159,4 m2
Einbýlishús
4
501 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Faxabraut 33
Skoða eignina Faxabraut 33
Faxabraut 33
230 Reykjanesbær
151,3 m2
Raðhús
524
512 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin