BYR fasteignasala kynnir í einkasölu VÉGARÐ 2 – FLJÓTSDALSGRUND, Fljótsdalshreppi.Gisitiheimili í rekstri, tíu gistiherbergi, borðsalur fyrir allt að 60 manns, bar/móttöku og framleiðslueldhúsi ásamt stakstæðu þjónustuhúsi með fjórum herbergjum. Samkvæmt seljanda er gistileyfi fyrir fjórum herbergjum í þjónustuhúsi.
Staðsetning u.þ.b. 7 km innan við í Hengifoss, í hjarta Fljótsdalsins. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Heildarstærð eignarinnar er samtals 633,8 m², sem skiptist í 487.6 m² gistiskála, byggðan árið 2009,
25. 4 m² eldhúsgám/viðbyggingu, byggða árið 2012, og 120.8 m² þjónustuhús, byggt árið 2009 samkvæmt fasteignayfirliti HMS.Skipulag;Gistiheimili: Anddyri/móttaka/bar, borðsalur, eldhús, starfsmannasnyrting, snyrting fyrir hreyfihamlaða,
tveir herbergjagangar með samtals tíu gistiherbergjum, hvert með sér baðherbergi. Í kjallara eru þvottahús og geymslur.
Þjónustuhús: Anddyri, alrými, fjögur herbergi, tvö baðherbergi, þvottaaðstaða og geymsla.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |
Aðkoma frá Egilsstöðum er annars vegar um Austurlandsveg nr. 1, Upphéraðsveg nr. 931 og Fljótsdalsveg nr. 933
eða um Skriðdals- og Breiðdalsveg nr. 95, Upphéraðsveg nr. 931 og Fljótsdalsveg nr. 933.Nánari lýsing;GISTIHEIMILIAnddyri/móttaka/bar er fyrir miðju húsi, þaðan er innangengt í önnur rými. Plastparket á gólfi, rafmagnstafla. Útgengt er út á baklóð frá móttöku/bar.
Borðsalur með uppteknu lofti, kamína (virk), harðparket á gólfi. Árið 2021 var salurinn gipsaður að innanverðu og klæddur lerki úr Hallormsstaðaskógi.
Útgengt er úr borðsal á baklóð.
Eldhús er fullbúið tækjum og er vottað framleiðslueldhús, dúkur á gólfi,vinnuaðstaða,
helluborð, innréttingar, uppþvottavél og handlaug.
Starfsmannasnyrting er inn af eldhúsi, handlaug og salerni.
Snyrting fyrir hreyfihamlaða er við bar, plastparket á gólfi, handlaug og salerni.
Gistiherbergi: Tveir herbergjagangar eru í húsinu með fimm gistiherbergjum á hvorum gangi. Teppi er á gólfum ganga.
Öll tíu gistiherbergin eru með sér baðherbergi. Átta herbergjanna eru tveggja manna herbergi og tvö eru stærri fjölskylduherbergi. Plastparket er á gólfum allra herbergja.
Eldunaraðstaða, „kitchenette“, er í fimm gistiherbergjum með innréttingu, tvöföldu helluborði og vaski.
Baðherbergi gistiherbergja eru með handlaug, salerni og sturtuklefa. Rafræn loftun er á baðherbergjum og hvert baðherbergi er með sér hitakút.
Kjallari: Þvottahús með innréttingum, hillum og vinnuborði, gluggi er í þvottahúsi.
Geymsla er innan við þvottahús, með lögnum og máluðu gólfi. Inn af henni er
köld geymsla (óskráð), þar er ekki full lofthæð og möl/steinar í/á gólfi.
Samkvæmt fasteignayfitliti HMS eru geymslur í kjallara 64.3 m² af heildarstærð hússins.
Húsið er kynnt með rafmagnsofnum. Lagnir eru upprunalegar.
Neyðarlýsing, slökkvitæki og eldvarnarkerfi eru í húsinu. Rotþró er við húsið.
Skálinn er byggður úr samsettum íslenskum einingum sem smíðaðar voru á Akureyri, upphaflega fyrir Landsvirkjun, og síðar fluttar að Végarði.
Steyptur sökkull/grunnur er undir húsinu og steyptur kjallari undir hluta þess. Skráð byggingarefni eignarinnar er steinsteypa og timbur.
Viðbygging er við húsið að aftanverðu og er hún skráð sem eldhúsgámur.
Húsið er klætt að utan með standandi málaðri timburklæðningu. Timburhurðir og gluggar eru upprunaleg og járn á þaki er upprunalegt.
Lýsing er í þakkanti.Timburverönd er við aðalinngang og timburverandir fyrir framan öll gistiherbergi til suðurs.
Timburstigi liggur niður að kjallara og hellulögð stétt er við inngang í kjallara.
ÞJÓNUSTUHÚSAnddyri, dúkur á gólfi og rafmagnstafla, baðherbergi er inn af anddyri.
Baðherbergi I, dúkur á gólfi, handlaug, salerni og sturtuklefa, gluggi.
Alrými, dúkur á gólfi og vifta með útblæstri, engin eldunartæki eru fyrir hendi í alrými.
Herbergi I, plastparket á gólfi og „kitchenette“ með hellum og stálvask.
Herbergi II, III og IV, dúkur á gólfum.
Baðherbergi II, dúkur á gólfi og veggjum, vaskinnrétting, salerni og sturtuklefi, gluggi.
Þvottaaðstaða, dúkur á gólfi. Húsið er kynnt með rafmagnsofnum. Lagnir eru upprunalegar.
Neyðarlýsing, slökkvitæki og eldvarnarkerfi eru í húsinu. Rotþró er við húsið.
Þjónustuhús er byggt úr íslenskum einingum sem smíðaðar voru á Akureyri, upphaflega fyrir Landsvirkjun, og síðar fluttar að Végarði.
Steyptur sökkull/grunnur er undir húsinu. Skráð byggingarefni er steinsteypa og timbur.
Húsið er klætt að utan með standandi málaðri timburklæðningu. Timburhurðir og gluggar eru upprunaleg og járn á þaki er upprunalegt.
Lóðin er 5.091,2 m² leigulóð, landeignanúmer L237384, í eigu Fljótsdalshrepps. Samkvæmt fasteignaskrá er notkun hennar skráð sem viðskipta- og þjónustulóð.
Lóðarleigusamningur er til 50 ára frá 12. mars 2024. Samkvæmt lóðarleigusamningi hefur lóðareigandi umferðarrétt í gegnum lóðina.
Hnitaskrá lóðar fylgir lóðarleigusamningi. Malarbílastæði eru við gistiheimili og þjónustuhús. Að öðru leyti er lóðin grasi gróin.
Talsverður trjágróður er á lóðinni sem myndar skjólbelti og afmarkar hana til austurs
Skráning eignarinnar samkvæmt fasteignayfirliti HMS.Fasteignanúmer: F2321439 , Végarður 2, Fljótsdalshreppur.Heildarstærð: 633.8 m²
Byggingarefni: Steypt + timbur
Matseiningar:
Mhl. 02.0101 – Gistiskáli, byggingarár 2009, 487.6 m².
– Rými 02.0001 Geymslur 64.3 Brúttó m². Rými 02.0101 Gistirými 332.3 Brúttó m². Rými 02.0102 Skáli 91 Brúttó m².
– Skráður á
byggingarstig B2, þ.e. fokhelt og matsstig 7 þ.e. fullgerð bygging.
Mhl 04.0101 – Eldhúsgámur, byggingarár 2012, 25.4 m².
- Skráður á byggingarstig B4 og matsstig 7, þ.e. fullgerð bygging.
Mhl. 03.0101 – Þjónustuhús, byggingarár 2009 – 120.8 m².
– Skráð á
byggingarstig B2, þ.e. fokhelt og matsstig 7 þ.e. fullgerð bygging.
Fasteignamat 2026: 58.350.000 kr.
Fyrirhugað fasteignamat 2027: 62.760.000 kr.
Brunabótamat: 277.550.000 kr.
Byggingarefni: Steypt + timbur..
Landeignanúmer: L237384. Viðskipta og þjón.lóð. 5.091,2 m².