Falleg mikið endurnýjuð 3 herbergja íbúð á 4. hæð með einstöku útsýni í vel viðhöldnu fjölbýli við Kaplaskjólsveg.
* Búið að færa eldhúsið í stofuna og gera annað svefnherbergi
* Frábært útsýni
* Mikið endurnýjuð íbúð
Eignin er skráð 75,2 fm og þar af er geymslan 2.9 fm
Fasteignamat 2026 er 65.000.000 mkr.
Nánari upplýsingar
Inga Reynis lgf í síma 8201-1903, inga@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendurSamanstendur af: tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, stofa og eldhús í sameiginlegu rými með útgengni á suðurvestur svalir ásamt geymslu í kjallara.
Nánari lýsing:
Anddyrið/hol er parket á gólfi.
Stofan/borðstofan er rúmgóð og björt með nýlegu parketi á gólfi. Útgengt á svalirnar.
Eldhúsið allt nýlegt gert af fagfólki með fallegri eyju og innréttingu með parket á gólfi.
Baðherbergið er nýlega algjörlega endurnýjað með fallegum flísum á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu, vaskaskápur og skápur.
Hjónabergi er mjög rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi þar sem áður var eldhúsið, með parket á gólfi
Skóskápur fyrir utan íbúðina.
Geymslan er á jarðhæð birt stærð 2,9 fm.
Sameiginleg þvotta- og þurrkaðstaða á jarðhæð þar sem hver er með sína eigin vél.
Framkvæmdir á eigninni
2024 Set nýtt hljóðeinangrandi undirlag og nýtt harðparket frá Pergo.
2024 Nýjar raflagnir í íbúðina alla ásamt nýju rafmagnstöflu.
2024 Nýjar lagnir í eldhúsinu þegar því var breytt og sett í stofuna.
2024 Nýir gluggar í allt húsið.
2023 Baðherbergið algjörlega endurnýjað, settar nýjar lagnir og öll tæki ásamt innréttingar nýjar. Fallegar flísar frá Egill Árnason.Eignin er mjög vel staðsett á þessum eftirsótta stað í Vesturbænum.
Grunnskóli og leikskólar eru í göngufjarlægð ásamt íþróttasvæði KR, sundlaug Vesturbæjar og Háskóla Íslands.
Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við Ægissíðu og sjóinn.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.