Holtsvegur 39, 210 Garðabæ
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími 588 4477, og Snorri Snorrason, löggiltur fasteignasali, sími 895 2115, netfang: snorri@valholl.is, kynna til sölu glæsilega og vel skipulagða þriggja herbergja útsýnisíbúð á 1. hæð við Holtsveg 39 í hinu vinsæla Urriðaholti.
Eignin er skráð 131,8 fm, þar af er 7,4 fm sérgeymsla í kjallara. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði (B-12) í opinni bílageymslu undir húsinu.
Íbúðin er einstaklega björt og vel staðsett með gluggum á þrjár hliðar, aukinni lofthæð og aðeins einni annarri íbúð á hæðinni, þar sem stigahús skilur eignirnar að og veitir aukið næði. Þótt eignin sé skráð á 1. hæð er hún á 2. hæð frá götu, þar sem undir húsinu er opin bílageymsla.
Frá stofu er útgengt á 10,3 fm svalir með svalaskjóli sem snúa til suðvesturs. Eigninni fylgir jafnframt 38 fm sérafnotaflötur með fallegri suðurverönd sem býður upp á einstaka útiaðstöðu.Vinsamlegast bókið sýningartíma hjá Snorra Snorrasyni lgf - snorri@valholl - simi 8952115. Eignin er eingöngu sýnd í einkasýningum.
Herbergjaskipan:Forstofa
Opið eldhús, borðstofa og stofa
Tvö svefnherbergi
Baðherbergi
Þvottahús
Sérgeymsla í kjallara
Rúmgóðar svalir
Sérmerkt bílastæði í bílageymsluNánari lýsing:Forstofa er rúmgóð og björt með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið og bjart alrými með aukinni lofthæð. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu, eyju, steinlögðum borðplötum, innfelldum vaski, spanhelluborði og háfi. Góð borðstofuaðstaða er í rýminu ásamt rúmgóðri stofu með fallegu útsýni.
Frá stofu er útgengt á rúmgóðar 10,3 fm svalir með svalaskjóli og timburflísum á gólfi. Auk þess fylgir eigninni 38 fm sérafnotaflötur með suðurverönd sem nýtist afar vel til útivistar.
Svefnherbergi I er með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi II er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósri viðarinnréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni, „walk-in“ sturtu og sér baðkari. Opnanlegur gluggi veitir góða birtu og loftræstingu.
Þvottahús er sér með flísum á gólfi, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, góðu vinnuborði og opnanlegum glugga.
Geymsla er í kjallara á geymslugangi. Í sameign eru einnig hjólageymsla, tæknirými og endurvinnsluherbergi.
Í opnum bílakjallara undir húsinu fylgir eigninni eitt sérmerkt bílastæði. Auk þess eru sjö bílastæði á lóðinni og möguleiki á fjórum til sex stæðum við götuna.
Aðgengi að eigninni er einstaklega gott, bæði um sameiginlegan inngang og einnig með séraðkomu um veröndina.
Skv funargerðum var farið í að laga leka sem vart var við vegna hönnunargalla í húsinu og er því verkin nú lokið.
Um er að ræða einstaklega glæsilega, bjarta og vel skipulagða eign á eftirsóttum stað í Urriðaholti, þar sem aukin lofthæð, gluggar á þrjár hliðar, stór sérafnotaflötur, glæsileg útiaðstaða og stæði í bílageymslu gera þessa eign afar eftirsóknarverða.Nánari upplýsingar veitir Snorri Snorrason, löggiltur fasteignasali, sími 895 2115, netfang: snorri@valholl.isForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 79.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.