Croisette Real Estate Partner kynnir:
TIL LEIGU nokkrar flottar skrifstofur í skrifstofukjarna - SKEIFAN 19
Í vinsæla skrifstofukjarna félagsins á 3. hæð að Skeifunni 19, beint á móti Pennanum, losnar fljótlega skrifstofa merkt nr. 8 á grunnmynd, skrifstofan er tæpir 67 fm., skrifstofa nr. 3 á grunnmynd sem er 35 fm og skrifstofa nr. 9 sem er 26 fm. Mikil eftirspurn hefur verið eftir minni skrifstofurýmum á svæðinu en á hæðinni eru samtals 11 skrifstofur. Allar skrifstofurnar eru með hlutdeild í tveimur fundarherbergjum á sömu hæð og eldhússaðstöðu. Skrifstofurnar eru frá tæplega 20 til tæplega 70 fm og snúa þrjár þeirra í suður og átta í norður. Skrifstofurnar eru leigðar án húsgagna en fundarherbergin eru fullinnréttuð og þá eru sömuleiðis setsvæði þar sem hægt er að hitta fleiri leigutaka hæðarinnar og koma á tengingum og samvinnu sé áhugi fyrir slíku.
Nánari upplýsingar veittar í síma 569 9090 og info@croisette.is
Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, david@croisette.is S: 766-6633
Ástþór Helgason, astthor@croisette.is S: 898-1005
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Croisette real estare partner bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
108 | 30 | Tilboð | ||
108 | 26 | Tilboð | ||
108 | 40 | Tilboð | ||
108 | 15 | 70 | ||
108 | 17 | Tilboð |