Í einkasölu bjarta og vel skipulagða 4-5 herbergja íbúð á 4.hæð (efstu) í snyrtilegu fjölbýli í eftirsóttu og fjölskylduvænu hverfi.Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, eldhús, stofu/borðstofu með útgengi á svalir, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 111,7 fermetrar.
Nánari lýsing:Anddyri: Rúmgóður fataskápur. Getur verið innangengt í þvotthús úr forstofu
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa með góðu plássi fyrir borðstofuborð, setustofu og sjónvarpshorn Í samliggjandi rými. Útgengt er að svalir frá stofu. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með auka fataherbergi með skúffum, hillum og hengi.
Svefnherbergi: Herbergi með fataskáp.
Svefnherbergi 2: Herbergi með pláss fyrir fataskáp.
Eldhús: Eldri eldhúsinnrétting með ágætis skápaplássi og flísum milli efri og neðri skápa. Tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur í eldhúsinu og gluggar. Innangengt er í þvottahús frá eldhúsi.
Þvottahús: Flísar á gólfi, skolvaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Skápar og ágætis geymslupláss.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtu og gleri. Baðinnrétting með skápum.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla (3 mínútna ganga), grunnskóla (8 mínútna ganga), menntaskóla (7 mínútna ganga), apótek og verslanir.
Þá er Skeifan, Kringlan, Borgatún og gönguleiðir/útivistar og íþróttasvæði í Laugardal einnig í göngufjarlægð.
Frábær eign sem er þess virði að skoða!
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000