CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu huggulega 59,5 fm risíbúð á 3. hæð í fallegu þríbýli við Nökkvavog 35 í Reykjavík. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og hol. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is og Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is.SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLITNánari lýsing:
Inngangur: er sameiginlegur með íbúð á miðhæð.
Hol: Gengið er inn í hol sem tengir öll rýmin saman. Parket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með lokuðu geymslurými undir súð. Parket á gólfi.
Eldhús: Snyrtilegt eldhús sem er að hluta til undir súð með hvítri innréttingu. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Gott herbergi sem er hluta til undir súð. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Gott herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi sem er að mestu leiti undir súð með ágætri innréttingu og baðkari. Flísar á gólfi og á hluta veggja.
Þvottahús: Er í sameign í kjallara.
Geymsluloft: liggur yfir allri íbúðinni (telur ekki inní fermetratölu íbúðar)
2023: Skipt um alla glugga nema þakgluggan inná baði.
Snyrtileg lóð með stórum sameiginlegum palli.
Nánari upplýsingar veita:
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is
Elín Auður Traustadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 858-0978 eða á elin@croisette.isEignin Nökkvavogur 35 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-3104, birt stærð 59,50 fm.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.