** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og rúmgott 207,4 m2 einbýlishús á einni hæð og með bílskúr á 840,3 m2 eignarlóð við Asparlund 5 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 207,4 m2, þar af íbúð 182,2 m2 og bílskúr 25,2 m2. Búið er að útbúa 2 stúdíó íbúðir í eigninni með sérinngangi. Annars vegar í bílskúr og svo í hjónasvítu. Auðvelt er að breyta til baka í upphaflegt skipulag. Aðalíbúð skiptist í dag í 3 svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, gang, forstofu, geymslu og geymsluloft. Stúdíóíbúð nr. 1 skiptist í alrými, fataherbergi og baðherbergi. Stúdíóíbúð nr. 2 skiptist í forstofu, baðherbergi og alrými. Stór bakgarður í suðurátt með timburverönd. Frábær staðsetning rétt við Varmá með fallegum gönguleiðum og stígum upp á næstu fjöll.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi.
Stofa er rúmgóð og með parketi á gólfi.
Borðstofa er björt og með parketi á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á timburverönd og bakgarð í suðurátt.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og eyju. Í innréttingu er helluborð, ofn og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir stórum ísskáp. Gott skápapláss og flísar á gólfi.
Gangur er með parketi á gólfi og fataskáp. Af gangi er aðgengi að rúmgóðu geymslulofti með góðri lofthæð.
Svefnherbergi nr. 1-3 eru með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, vegghengdu salerni, skolvask og baðkari með sturtu.
Gestasnyrting er með salerni, skolvask og flísum á gólfi.
Þvottahús er með innréttingu og góðu flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er inn af þvottahúsi. Úr geymslu er gengið út á bílaplan.
Stúdíóíbúð nr. 1 (Hjónasvíta) skiptist upp í alrými, baðherbergi og fataherbergi. Sérinngangur er í íbúðina. Í herbergi er parket á gólfi og fataskáp. Inn af herbergi er fataherbergi en þar er tengi fyrir þvottavél. Baðherbergi er með flísum á gólfi, handklæðaofni, vegghengdu salerni, innréttingu með skolvaski og sturtu. Rýmið er í útleigu í dag. Upphaflega er rýmið hjónaherbergi en er búið að loka fyrir inni hurð. Auðvelt væri að breyta til baka.
Stúdíóíbúð nr. 2 (Bílskúr) skiptist í forstofu, baðherbergi og alrými með vask og lítilli innréttingu.
Verð kr. 149.900.000,-