Fasteignaleitin
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 15. ágúst 2026

Þorláksgeisli 122

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
268.8 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
245.000.000 kr.
Fermetraverð
911.458 kr./m2
Fasteignamat
171.350.000 kr.
Brunabótamat
110.300.000 kr.
Mynd af Guðmundur Hallgrímsson
Guðmundur Hallgrímsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Byggt 2004
Garður
Svalir
Bílskúr
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2269942
Landnúmer
189610
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt.
Raflagnir
Upprunalegt.
Frárennslislagnir
Upprunalegar.
Gluggar / Gler
Þarfnast endurnýjunar.
Þak
Upprunalegt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita / gólfhiti.
Inngangur
Sérinngangur
LIND Fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson, löggiltur fasteignasali, kynna Þorláksgeisla 122. Sérlega glæsilegt einbýlishús neðan götu á einstökum útsýnisstað við nátturuparadís í Grafarholti.
Húsið er vel skipulagt með stórum fallegum garði sem er í hásuður. Fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni meðal annars við Reynisvatn og golfvöllinn í Grafarholti.
Heitur pottur er í garði fyrir framan hjónasvítu. Til eru samþykktar teikningar á stækkun hjónasvítu.  Möguleiki á að vera með allt að sex svefnherbergi.


Húsið er á tveimur hæðum. Á efri hæð eru forstofa, gestasnyrting, stofa með arni og borðstofu, eldhús, og innangengt er í bílskúr sem er nýttur að hluta til sem rúmgott svefnherbergi í dag. Tvennar stórar útsýnissvalir sem snúa í suður og vestur eru út frá stofu. Á neðri hæð eru fjögur svefnherbergi og þar af er hjónasvíta með sér fata og baðherbergi, þaðan er hægt að ganga út í garð. Aðalbaðherbergi hússins er á svefnherbergisgangi og einnig þvottahús. Í miðrými neðri hæðar er sjónvarpsstofa með útgangi út í garðinn. Innbyggður bílskúr fylgir húsinu og geymsla undir bílaplani sem er um það bil 30 m². Geymslan er ekki skráð inn í fermetratölu hússins. Lóðin er fullfrágengin og er glæsileg á allan hátt. Gras og gróður ásamt pöllum og hellulögn og heitum potti. Útiarinn er í garði fyrir framan sérsmíðaða bekki og borð. Á lóð er einnig köld geymsla.

Nánari lýsing: 
Efri hæð:
Forstofa sem er með fallegum sérsmíðuðum fataskápum.
Gestasnyrting er til hliðar við forstofu
Bílskúr innangengt er í bílskúr frá forstofu sem nýttur er sem stórt svefnherbergi í dag en auðvelt að breyta aftur.
Stofur eru stórar og bjartar með gólfsíðum gluggum sem eru með glampavörn. Fallegur arinn er í stofu og þaðan er frábært útsýni. Tvennar rúmgóðar svalir í suður og vestur eru frá stofum.
Eldhús er með sérsmíðaðri innréttingu og granítborðplötum. Eldunareyja er með gaseldunartækjum.

Neðri hæð:
Af efri hæð er gengið niður stiga og komið inn í miðrými neðri hæðar þar sem er rúmgóð sjónvarps- og fjölskyldustofa með útgengi á lóð. - Möguleiki er á að breyta sjónvarpsstofunni í fimmta svefnherbergi eignarinnar.
Hjónasvíta er glæsileg og rúmgóð með fataherbergi. Við hlið hennar er baðherbergi með baðkari. Útgengt er úr hjónasvítunni út í garð þar sem heitur pottur er staðsettur.
Svefnherbergi II er við hlið hjónasvítunnar og er í dag nýtt sem skrifstofa.
Svefnherbergi III er rúmgott og bjart.
Svefnherbergi IV er einnig rúmgott og bjart.
Baðherbergi er með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
Þvottahús er á hæðinni.
Geymsla er um það bil 30 m² að stærð, staðsett undir bílaplani og með sérinngangi frá garði.

Lóð:
Lóðin er 811 m² með pöllum og hellulögn en að öðru leyti með grasi og fallegum gróðri. 
Þrjú sérbílastæði eru á lóðinni þar af er eitt bílastæði fyrir framan bílskúr.  Fremst í bílskúr framan við herbergi er geymsla.
Á lóð er einnig köld geymsla.  Tvær hleðslustöðvar í áskrift eru við bílastæði.
Mjög vönduð og glæsileg eign á frábærum útsýnisstað í Grafarholtinu.

2026 Baðherbergi á neðri tekið í gegn að því sem viðkemur flísum, klósettkassa, niðurfalli og slíkt. 
2025 Parket í síldarbeinamustri frá Ebson lagt á efri hæðina, flísar lagðar á gólfið á gestabaðherbergi. Auk þess sem það voru sérsmíðaðir skápar í anddyrið og stofuna.
2021 Þakdúk lagður á útigeymsluna og hún einangruð.

Samþykktar teikningar að viðbyggingu á neðri hæð fylgja með (ca 10m2), Nýtt baðherbergi og breyting á hjónasvítu.  Útgengi að pottasvæði um venjulega hurð og sturta við hurðina ásamt baðkari við glugga.
ATH að sakv HMS er eignin skráð 238,8fm en er stærri þar sem geymsla er ekki inn í skráðum fm.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/08/202195.500.000 kr.162.500.000 kr.238.8 m2680.485 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2004
22.6 m2
Fasteignanúmer
2269942
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.150.000 kr.

Myndir (61)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 39
Skoða eignina Vorbraut 39
Vorbraut 39
210 Garðabær
270 m2
Raðhús
634
848 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 39
251024_474_Vorbraut_T_ arkitektar_03 INT.jpg
Skoða eignina Vorbraut 39
Vorbraut 39
210 Garðabær
270 m2
Raðhús
634
848 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 33
Skoða eignina Vorbraut 33
Vorbraut 33
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 33
251024_474_Vorbraut_T_ arkitektar_03 INT.jpg
Skoða eignina Vorbraut 33
Vorbraut 33
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin