Hraunhamar fasteignasala og Ársæll Ó. Steinmóðssson kynna til sölu fallega, töluvert endurnýjaða og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli við Hólabraut 11 í Hafnarfirði. Samkæmt birtum fm er íbúðin 74 fm og sérgeymsla í kjallara 7,6 fm samtals 81,6 fm. Stigagangur er snyrtilegur. Gólfhiti er í stofu, eldhúsi og baðherbergi.Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Hafnarfirði með miðbæinn í þægilegu göngufæri og stutt í fjölbreytta verslun og þjónustu í nágrenninu.
Samkvæmt uuplýsingum frá seljanda voru parket, eldhús og baðherbergi endurnýjuð fyrir 5 og 6 árum. Skipt var um svalir og handrið 2024, gluggar á suðurhlið voru endurnýjaðir 2023, þakrennur, dyraasími og tröppur steyptar fyrir 5-6 árum.Nánari lýsing:Forstofa/gangur er með parketi á gólfi og opnu fatahengi.
Þrjú herbergi eru öll með parketi á gólfum, úr hjónaherberginu er útgengt út á svalir.
Baðherbergið er með flísum í hólf og gólf. Baðkar og sturta, dökk innrétting, handklæðaofn og gluggi.
Eldhúsið er rúmgott með fallegri innrétttingu, flísar á milli skápa, parket á gólfi, háfur, helluborð, ofn í vinnuhæð, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Stofa er með parketi á gólfi.
Geymsla á jarðhæð með glugga.
Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð ásamt hjóla-og vagnageymslu.
Hús er klætt að utan á tveim hliðum.
Samkvæmt upplýsingum frá seljendum er hunda- og kattahald er leyft af núverandi íbúum hússins..
ATH: Búið er að breyta eigninni þ.a hún er ekki í samræmi við upphaflegar teikningar. Skemmtileg og vel skipulögð eign á þessum vinsæla stað miðsvæðis í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s.896-6076, arsaell@hraunhamar.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu kr.68.200.-m.vsk.
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í 41 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.