Fold fasteignasala 552-1400 kynnir nýtt á skrá og í einkasölu: Njálsgötu 58B, efri sérhæð í bakhúsi í 101 Reykjavík. Laus við kaupsamning.
Inngangur frá Barónstíg.
Íbúðin er 3ja herbergja 62,4 fm ásamt 6,6 fm geymslu, samtals 69 fm. Sérinngangur og sameiginleg lóð.
Íbúðin var mikið endurnýjuð, að sögn seljanda, fyrir 10 árum og húsið að utan ásamt garði var gert upp fyrir 6 árum. Þá var skipt um gólfefni, innréttingar, tæki, glugga og útidyr. Rafmagn var endurnýjað og sett ný tafla ásamt öllum neysluvatns-, frárennslis- og hitalögnum. Þakjárn var endurnýjað ásamt þakpappa og klæðningu og stoðum eftir þörfum. Garður endurnýjaður og pallur smíðaður og hellur lagðar með snjóbræðslu. Húsið var málað 2016. Parket og flísar á gólfum.
Nánari lýsing:
Forstofa m/fatahengi.
Eldhús m/hvítri innréttingu ásamt eikar borðplötu, keramik helluborði og viftu, Miele bakarofni og innbyggðri Miele uppþvottavél. Flísar eru á milli efri og neðri skápa. Þakgluggi yfir eldhúsi sem hleypir inn fallegri birtu.
Stofa og borðstofa saman í opnu rými.
Svefnherbergi inn af stofu er rúmgott með innbyggðum fataskápum.
Annað minna svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, gólfhiti, náttúrusteinn á gólfi, á vegg og í sturtu, upphengt salerni, innrétting, sturtuklefi m/tveimur sturtum ásamt handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inná baði.
Sér geymsla í kjallara.
Hiti og rafmagn á sér mæli.
Þessi íbúð á 56,11% eignahlut í húsi og lóð.
Fold fasteignasala 552-1400, Sóltúni 20, 105 Reykjavík. fold@fold.is
Viðar
694-1401, Gústaf Adolf
895-7205, Hörður s.899-5209 /
www.fold.is
Við erum á
Facebook.