ALDA fasteignasala kynnir í einkasölu vel skipulagt 218,8 fermetra einbýlishús, þar af 40,3 fermetra bílskúr, í byggingu við Eikardal 13 í Innri-Njarðvík Reykjanesbæ. Um er að ræða báruklætt timburhús á einni hæð. Teikningar gera ráð fyrir fjórum rúmgóðum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, stórri stofu sem er opin við eldhús, anddyri, rúmgóðu þvottaherbergi og tæplega 40fm bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson í síma 6189999, tölvupóstur halldor@aldafasteignasala.is.
Lýsing:
Afar fallegt 218,8 fermetra einbýlishús, þar af 40,3 fermetra bílskúr, í byggingu við Eikardal 13 í Innri-Njarðvík Reykjanesbæ. Um er að ræða báruklætt timburhús á einni hæð. Teikningar gera ráð fyrir fjórum rúmgóðum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, stórri stofu sem er opin við eldhús, anddyri, rúmgóðu þvottaherbergi og tæplega 40fm bílskúr.
Húsið er skráð á byggingarstig 4 og matsstig 4. Um er að ræða frábært tækifæri til þess að innrétta fallegt fjölskylduhús eftir eigin höfði. Búið er að leggja fyrir gólfhita í allt húsið. Þá er búið að einangra allt húsið (loft og veggi), plasta veggi, ganga frá einangrun/þéttingum í kringum glugga og hurðar, klæða útveggi með osb plötum og harðgipsi og innveggir úr osb plötum og gipsi. Innveggi verður búið að sparsla og mála fyrir afhendingu. Komið er vinnurafmagn í húsið (dregið í flestar dósir en ekki búið að tengja allt í töflu). Útgengi á lóð frá öllum hliðum hússins. Búið að leggja affall fyrir heitum potti á baklóð. Bílskúr skilast í því ástandi sem hann er í í dag (ekki búið að setja plötur á veggi eða loft og ekki búið að tengja tengla og ljós). Frágangur á brunavegg er ekki fullkláraður.
Lóð og teikningar:
Lóðin Eikardalur 13 skilast grófjöfnuð og er búið er að skipta um jarðveg í bílaplani og setja í mulning. Allar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.
Gröftur og fylling: Grafið er niður á fast og fyllt í með grófri möl sem er þjöppuð.
Sökklar: Sökklar eru um 600mm háir. Járnabinding er 2xK12 kambstál efst og neðst í sökkli, einföld 6mm járnamottugrind og K10 kambstál í tengijárnum við plötu. Sökkulveggir eru eingraðir beggja vegna með 16kg/75mm plasteinangrun. Steypa er af gerðinni S-250.
Botnplata: Einangrun undir plötu er 24kg/m3 100mm plasteinangrun. Járnabinding er 6mm járnamottugrind. Steypa er af gerðinni S-250. Botnplata er fínslödduð og kaupandi þarf að þurrslípa fyrir gólfefni, kaupandi gæti þó þurft að laga undir gólfefni.
Lagnir: Skolp-og rengnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu. Gert verður ráð fyrir gólfhitalögnum í steyptri gólfplötu þar sem við á. Rör í rör kerfi er fyrir neysluvatn undir botnplötu samkvæmt teikningu. Einnig eru ídráttarrör út fyrir sökkul fyrir heitan pott í garð innifalin. Salerni fylgja báðum baðherbergjum og þrír handklæðaofnar. Nánast öll vinna pípara er komin (innan veggja, ekki búið að tengja blöndunartæki o.þ.h.).
Raflagnir: Inntakstafla fyrir rafmagn verður komin og gert ráð fyrir tengingu fyrir vinnurafmagn. Vinnurafmagn í húsi er komið.
Útveggir: Útveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri, 45x145mm og klæddir 9mm krossvið að utan til stífingar. Útveggjaklæðning er litað báruál og standandi viðarklæðningu í kringum anddyri.
Innveggir: Allir innveggir eru komnir.
Þak og loft: Þak er byggt upp úr kraftsperrum, klætt með borðvið. Þakpappi er íslenskur og ofan á þakpappa er klætt með aluzink. Búið verður að setja upp sitthvort loftræsirörið úr baði og þvottahúsi sem leitt verður út í þakkant
til öndunar fyrir þessi rými.
Þakskegg: Þakkanturinn er klæddur með lituðu áli. Rennur eru utaná þakkannti og eru úr lituðu áli og tengdar fráveitukerfi í götu. Niðurfallsrör eru úr sama efni. Allur þakkantur er með hvítum lit.
Gluggar og hurðir: Glugga og hurðakarmar eru málaðir í hvítum lit að innan og að utan. Frágangur í kringum glugga og hurðir er úr áli í sama lit og utanhúsklæðning. Gluggar eru frá Gluggatækni ehf. og bílskúrshurð frá FrontX.
Opinber gjöld: Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald og stofngjald holræsa. Inntaksgjöld vatns, rafmagns og hita eru greidd. Kaupandi greiðir skipulagsgjald.
Fasteignamat næsta árs:65450000
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Halldór Kristján Sigurðsson, löggiltur fasteignasali S:6189999
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.