Skráð 28. júní 2022
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas Golf

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
75 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
44.100.000 kr.
Fermetraverð
588.000 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Lyfta
Garður
Fasteignanúmer
200120622
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Svalir
tvær verandir
Upphitun
Kæling/hiti
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG NÝLEG ÍBÚÐ Á LAS RAMBLAS GOLFVELLINUM*-*FRÁBÆRT ÚTSÝNI*-*EINKASUNDLAUG*

Einstaklega glæsileg og falleg nýleg íbúð á jarðhæð með lokuðum einkagarði með einkasundlaug og auk þess aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði  á hinu vinsæla Las Ramblas golfsvæði, um 50 mín akstur suður af Alicante. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa/borðstofa í opnu rými, vel útbúið eldhús  opið við stofu. Þvottahús. Tvær verandir, önnur yfirbyggð. Flott útsýni. Vandaðar innréttingar. Gólfhiti á baðherbergjum. Vönduð húsgögn og húsbúnaður fylgir. Innanhúshönnuður sá um að innrétta íbúðina og þar var ekkert til sparað eins og sést á myndunum.
Loftkæling/hiti.

Ein með öllu fyrir kröfuharða.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 893 2495. karl@spanareignir.is


Einstakt tækifæri til að eignast stórglæsilega nýlega  íbúð á þessum vinsæla stað. Íbúðin er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum, þar sem er veitingastaðir, golfverslun, æfingasvæði og góð þjónusta við golfara. Einnig er göngufæri í La Fuente, þar sem er gott úrval góðra veitingastaða, verslana og þjónustu. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romero, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl. ofl.

Hér er um að ræða algjöra draumaeign fyrir golffjölskylduna, sem vill líka skreppa á ströndina og borða á góðum veitingastöðum. Sem sagt, eign fyrir fólk sem kann að njóta lífsins.

Verð 315.000 Evrur+kostn. (ISK. 44.100.000 + kostn. miðað við gengi 1E=140 ISK.)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við veitum persónulega þjónustu og aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir 

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa  að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.

Eiginleikar: golf, útsýni, nýleg eign, einkasundlaug, sameiginlegur sundlaugargarður, verönd, air con,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.eignir.isEignir í sölu

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
84 m2
Einbýlishús
423
551 þ.kr./m2
46.300.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Las Colinas
Sumareignir Las Colinas
Spánn - Costa Blanca
75 m2
Fjölbýlishús
322
560 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Sýningaríbúð
Sumareignir Sýningaríbúð
Spánn - Costa Blanca
72 m2
Fjölbýlishús
322
583 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Sýningaríbúð
Sumareignir Sýningaríbúð
Spánn - Costa Blanca
72 m2
Fjölbýlishús
322
583 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache