Fasteignaleitin
Skráð 13. jan. 2026

Grensásvegur 1A - 708

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
115.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
1.385.615 kr./m2
Brunabótamat
72.750.000 kr.
Byggt 2025
7. hæð
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
252222710
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar fullbúnar nýjar íbúðir í lyftuhúsi við Grensásveg 1A, margar íbúðinna eru með glæsilegu útsýni.  

FasteignaBRÚ brúar bilið, með aðeins 10% útborgun getur þú eignast nýja vandaða íbúð á besta stað miðsvæðis í Reykjavík,  sjá nánar HÉR.

Við á Heimili fasteignasölu erum staðsett í næsta húsi (Grensásvegur 3) við þetta glæsilega fjölbýli. Hafið samband og við göngum með ykkur yfir götuna og sýnum samdægurs fullbúna sýningaríbúð.  

 
Nánari lýsing íbúðar 0708. Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum. Baðherbergi eru með flísalögðum gólfum og veggjum, innfeld blöndunartæki í sturtu, sturtugler, salerni og handklæðaofn. Þvottahús er flísalagt. Innfeld Led lýsing í loftum fylgir.
Stórglæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja 115,4 fm íbúð á 7. hæð (efstu) með gólfsíðum gluggum mikilli lofthæð og hita í gólfum. Fallegt útsýni til suðurs og vesturs af tvennum svölum.
Skipulag íbúðarinnar er eftirfarandi: Komið er inn forstofu og þaðan stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa með góðri lofthæð, gengið út á svalir í vestur með miklu útsýni.  Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf og sturta sem gengið er inní. Þvottahús innan íbúðar. Stórt hjónaherbergi útgangi út á svalir í suður. Barnaherbergi er við forstofuna. Sérgeymsla í kjallara, merkt 0072.  Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. 

Frekari upplýsingar veita:
Finnbogi Hilmarsson, finnbogi@heimili.is, 895-1098
Sigríður Lind Eyglóardóttir, sigridur.lind@heimili.is, 899-4703
Anna Sigurðardóttir, as@heimili.is, 898-2017
Gunnlaugur A. Björnsson, gab@heimili.is 617-5161

 
Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.
Stutt lýsing Grensásvegs 1 A/F.
Húsið er 76 íbúða vandað 7. hæða fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd og með stórum gólfsíðum björtum gluggum.   Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól.

Bílakjallari.
Í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum Parka sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt. 
Í fullbúnum bílakjallara eru hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla.Deilibílar - í bílakjallara er aðgengi að bílastæðum þar sem búið er að koma upp ON hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla og möguleiki á deilibílum frá Brimborg fyrir íbúa til daglegra nota.

Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Heimili fasteignasölu, Grensásvegi 3, 530-6500 eða á heimili@heimili.is  Heimasíðu verkefnisins má finna hér.


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álftaland 7
Efsta hæð
Opið hús:22. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Álftaland 7
Álftaland 7
108 Reykjavík
136.9 m2
Fjölbýlishús
313
876 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Stakkholt 2b (íbúð501)
Stakkholt Aðalmynd.jpg
Stakkholt 2b (íbúð501)
105 Reykjavík
104.8 m2
Fjölbýlishús
312
858 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (417)
Hleðslustöð
Selector1.jpg
Skoða eignina Laugaborg (417)
Laugaborg (417)
105 Reykjavík
113.3 m2
Fjölbýlishús
3
988 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (509)
Efsta hæð
Hleðslustöð
IMG_1497.JPG
Skoða eignina Laugaborg (509)
Laugaborg (509)
105 Reykjavík
112.3 m2
Fjölbýlishús
3
1023 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin