*** DOMUSNOVA KYNNIR * EINBÝLISHÚS MEÐ AUKAÍBÚÐ GÆTU VERIÐ 2 AUKA ÍBÚÐIR Á FALLEGUM OG FRIÐSÆLUM STAÐ í SELJAHVERFINU ***Gott einbýlishús með aukaíbúð staðsett innarlega í botlanga
neðan við götu næst grænu svæði með fallegu útsýni og göngustígum í allar áttir.
Ölduselsskóli, leikskólinn Seljaborg, Íþróttafélag Reykjavíkur og ýmis önnur þjónusta í göngufæri.Húsið er
vel skipulagt með innbyggðum
27fm. bílskúr og er innra skipulag með eftirfarandi hætti:
Komið inn í
anddyri frá götuhæð sem nýtist bæði fyrir
aðalíbúð og aukaíbúð þaðan sem gengið er inn í hvort rýmið fyrir sig. Á hæðinni er annars vegar
aukaíbúðin sem er innréttuð með góðu
svefnherbergi, flísalögðu
baðherbergi,
eldhúsi og stofu í sameiginlegu rými. Góðir gluggar og íbúðin því mjög björt. Út frá stofu er gengið út á
stóra verönd sem nýtist báðum íbúðunum. Hins vegar er gengið úr anddyri í
stærri íbúðina þar sem eru
tvær samliggjandi stofur, eldhús, lítið
svefnherbergi/skrifstofa,
gestasalerni og lítið
anddyri til norðurs.
Bílskúr er innbyggður með hita og rafmagni. Léttur stigi er á milli hæða og á efri hæðinni eru
þrjú svefnherbergi og flísalagt
baðherbergi. Útgengt á
suður svalir frá hjónaherbergi.
Í kjallara eru mjög stórt
svefnherbergi, stór
geymsla,
þvottahús með útgengi í garð, gluggalaust rými sem hefur verið innréttað sem
skrifstofa og inntaksrými.
Birt stærð eignarinnar telst vera
327,8fm. skv. upplýsingum frá HMS.
Nánari upplýsingar veita:
Vera Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali / s. 8661110 / vera@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.isSkrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
NÁNARI LÝSING:
1. hæð: Anddyri flísalagt ljósum flísum. Fatahengi og inngangur í báðar íbúðir. Innihurðir hvítar fulningahurðir. Innaf anddyri er gengið inn í
aðalíbúð og aukaíbúð sem auðveldlega má sameina aftur.
Aukaíbúð er með parketi á gólfum nema baðherbergi sem er flísalagt.
Stofa og eldhús í sameiginlegu opnu rými með útgengi á stóra verönd. Gluggar í tvær áttir og íbúðin því björt.
Svefnherbergi rúmgott með skáp.
Baðherbergi flísalagt með baðkari og opnanlegur gluggi.
Aðalíbúð er með
tvær samliggjandi stofur og er aukin lofthæð að hluta þar sem er létt panelklætt loft með viðarbitum. Útgengi frá stofu um rennihurð á stóra timburverönd með heitum potti.
Eldhús með dökkri innréttingu og glugga.
Gestasvefnherbergi eða skrifstofa á hæðinni.
Gestasalerni með glugga og ljósar flísar á gólfi.
Anddyri einnig til norðurs að bílaplani.
2. hæð:Hjónaherbergi með fataskáp og parketdúk á gólfi. Útgengi á rúmgóðar suðursvalir
Svefnherbergi #2: Rúmgott herbergi með fataskáp. Parketdúkur á gólfi
Svefnherbergi #3: Rúmgott herbergi með fataskáp. Parketdúkur á gólfi
Baðherbergi er með korkdúk á gólfi. Flísalagður sturtuklefi og innbyggt baðkar. Gluggar á baðherbergi og dökk innrétting.
Innihurðir hvítar fulningahurðir. Léttur stigi úr ljósum við milli hæða. Stigaop með góðum gluggum sem hleypir birtu í rýmið.
Kjallari:
Svefnherbergi sem er óvenju stórt með góðum gluggum. Parket á gólfi. Mögulegt að stækka herbergi enn frekar inn í geymslu.
Skrifstofuherbergi sem er án glugga og parket á gólfi.
Þvottahús er rúmgott með innréttingu. Útgengi í garð frá þvottahúsi.
Geymsla mjög rúmgóð með glugga og hægt að fella niður léttan vegg til stækkunar á svefnherbergi.
Bílskúr er 27fm. með heitu og köldu vatni ásamt rafmagni. Undir bílskúr er stór geymsla jafnstór bílskúr með rafmagni og upphitun. Stýritæki fyrir heitan pott í geymslunni.
Lóðin er mjög gróin og eru tröppur frá aðal verönd hússins niður á neðri hæð þar sem einnig er stór yfirbyggð verönd
Staðsetningin er einstaklega góð í friðsælu og fallegu umhverfi í göngufæri við skóla og aðra þjónustu. Gönguleiðir til allra átta í nágrenni.
Nánari upplýsingar veita:Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.