Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir : Mjög rúmgóð 3ja herbergja íbúð á annarri hæð með glæsilegu útsýni til suðvesturs. Birt stærð íbúðar er 134 fm og þar af er bílskúr 32 fm. Aðeins er gengið upp tæplega hálfa hæð að íbúðinni. Í eigninni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, stofa og sér þvottaherbergi. Útsýnið frá íbúðinni er yfir að Garðabænum og vestur eftir Kópavoginum. Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér// Hús málað 2019
// Þak málað 2022
// Stór bílskúr
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í rúmgott forstofuhol sem er einskonar miðja íbúðarinnar. Náttúrusteinflísar eru á gólfi og tvöfaldur beyki fataskápur nær upp í loft.
Eldhús + borðkrókur: Eldhúsið er með beyki innréttingu með efri og neðri skápum, hvítar flísar eru á vegg á milli skápa. Innan af eldhúsinu er góður borðkrókur sem nýtist einnig sem borðstofa. Fallegt útsýni er frá borðkróknum. Náttúrusteinflísar eru á gólfi.
Stofa: Opið er frá borðkróknum yfir í setustofuna. Frá setustofunni er útgengi á góðar suðvestur útsýnissvalir. Parket er á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi og á veggjum. Beyki innrétting er undir vaski og við hlið spegils. Bæði er baðkar og sér sturtuklefi í rýminu.
Svefnherbergi: Parket á gólfi með stórum fataskáp sem nær upp í loft.
Barnaherbergi: Rúmgott með parket á gólfi.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og vinnuborði.
Geymsla: Geymsla fylgir íbúðinni í sameign. Geymslan er 6,9 fm.
Bílskúr: Mjög rúmgóður bílskúr með stóru geymslulofti.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.