Byr fasteignasala kynnir í einkasölu BREIÐAMÖRK 12 OG 14 , 810 Hveragerði. Gróðurhús, verslunarhúsnæði, einbýlishús, með auka íbúð og tvöfaldur bílskúr í hjarta Hveragerðis. Húsin standa við Breiðumörk sem er aðalgata Hveragerðis, næg bílastæði eru framan við húsin. Í dag er verslunin Blómaborg rekin í hluta húsnæðisins.Breiðamörk 12 og 14 samanstanda af íbúðarhúsi með tvöföldum bílskúr og aukaíbúð 237.9 m² og gróðurhúsi og verslun 577,1 m², samtals 815 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Áætlað fasteignamat ársins 2023 verður samtals kr. 98.400.000,-Breiðamörk 12 er skráð 237,9 m². Húsið er steypt, 185,4 m², byggt árið 1941-1959, ásamt bílskúr 52,5 m², byggður árið 1988, samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Einbýlishús með aukaíbúð og tvöfaldur bílskúr. Skipulag eignar:
Neðri hæð: anddyri, eldhús og borðstofa í sama rými, stofa, hol/stigahús, baðherbergi/þvottahús og bakinngangur.
Efri hæð: Þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Auka íbúð á neðri hæð, u.þ.b. 40 m² með sérinngangi. Einnig er innangengt á milli eignanna. Í aukaíbúð er anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi og svefnherbergi.
Breiðamörk 14 er skráð 522,0 m². Gróðurhús 522,0 m² byggingarár 1950 og verslun 55,1 m² byggingarár 1960 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Gróðurhús og verslun. Skipulag eignar:
Gróðurhús, söluskáli/verslun, vinnurými, skrifstofa, geymsla, kælir og salerni.
Steypt plata er við enda gróðurhússins u.þ.b. 70 m² byggingu að gólffleti.
.
Lóðirnar eru leigulóðir frá Hveragerðisbæ, Breiðamörk 12 stærð lóðar er 843,0 m² og Breiðamörk 14 stærð lóðar er 896,8 m² samtals 1.739,8 m²
Áhugaverð eign í hjarta Hveragerðis sem býður uppá ýmsa möguleika.
Ýtið hér fyrir staðsetningu. Samkvæmt deiliskipulagi Grímsstaðareits er heimilt að byggja húsnæði á tveimur hæðum, samtals 1.100 m², á lóðunum Breiðamörk 12 og 14. Verslunarhúsnæði á neðri hæð og þrjár til sjö íbúðir á efri hæð.
Sjá greinargerð um deiliskipulag á Grímsstaðareit hér. Nánari upplýsingar og til að bóka skoðun er í síma 483-5800 eða byr@byrfasteign.is.