Fasteignaleitin
Skráð 27. ágúst 2026

Asparskógar 8

SumarhúsVesturland/Akranes-301
70.6 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
42.900.000 kr.
Fermetraverð
607.649 kr./m2
Brunabótamat
45.150.000 kr.
Byggt 2002
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
22528541
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Margir inngangar

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Virkilega fallegt og fjölskylduvænt heilsárshús vel staðsett á lokuðu frístundahússvæði við Asparskóga í Svarfhólsskógi Hvalfjarðarsveit.  Þrjú svefnherbergi ásamt rislofti.  Stórir sólpallar eru umhverfis húsið, heitur pottur fylgir.  Læst hlið er inná svæðið. Aðeins 45 mín akstur frá Reykjavík. 

Komið er inn um aðalinngang inn í húsið. Rúmgott anddyri með flísum, fatahengi og skáp.  Barnaherbergi með parketi og kojum. Svefnherbergi með parketi og skáp. Hjónaherbergi með parketi og skápum. Stórt opið parketlagt rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús, góð lofthæð. Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu og uppþvottavél. Stofa og borðstofa með parketi, falleg kamína er í stofunni.  Útgengt er út á veröndina úr stofunni.  Baðherbergi með dúk á gólfi, innrétting, handklæðaofn og sturtuklefi, útgengt út á veröndina. Úr anddyrinu er þægilegur stigi upp í risið, þar er stór sjónvarpsstofa sem einnig getur nýst sem svefnloft. Útigeymsla er við húsið.  Stórt bílaplan fyrir nokkra bíla. 
Bústaðurinn var byggður árið 2002 af fagaðilum og fluttur á staðinn.  Hann stendur á staðsteyptum stöplum.  Stórir sólpallar eru umhverfis húsið að mestu.  Á pallinu er heitur pottur.  Lóðin er mjög falleg, mikill og fallegur gróður. Þar hefur verið gróðursett mikið magn af  plöntum á undan förnum árum. Auk þess er rúmgóð sparkflöt og leiksvæði. 

Bústaðurinn er í mjög góðu ástandi, er vel umgengin og hefur fengið gott viðhald.  Megnið af húsgögnum fylgir með ásamt einhverjum eldhúsáhöldum ef áhugi er á, persónulegir hlutir verða fjarlægðir. 
 
Landið er leigulóð í landi Svarfhóls í Svínadal, það er 4.800 fm að stærð. Lóðarleiga á ári er kr. 230.000 á ári og er nýr leigusamningurinn er til 20 ára. Gjald til félags leigulóðarhafa er kr. 40.000 á ári. Svæðið er lokað með símahliði. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@heimili.is 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Beykiskógar 19
Skoða eignina Beykiskógar 19
Beykiskógar 19
300 Akranes
73.5 m2
Fjölbýlishús
312
815 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Þjóðbraut 3 - 503
Bílastæði
Efsta hæð
Þjóðbraut 3 - 503
300 Akranes
84.2 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturgata 77
Skoða eignina Vesturgata 77
Vesturgata 77
300 Akranes
62.2 m2
Fjölbýlishús
211
514 þ.kr./m2
32.000.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 19
Skoða eignina Asparskógar 19
Asparskógar 19
300 Akranes
73.3 m2
Fjölbýlishús
312
722 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin