Falleg endaíbúð með miklu útsýni, í lyftuhúsi við Ljósheima 20, Laugardalnum.* Endurnýjað eldhús
* Viðar / stafa-parket í stofu
* Skjólgóðar svalir til suð-austurs
Nánari upplýsingar veita:Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar samkv. HMS er 60,50 m2.
Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, baðherbergi, hjónaherbergi, svalir og geymslu.Hol er með parket á gólfi og fataskápum.
Eldhús er með fallegri L-laga innréttingu og upprunalegum efri skápum sem setja mikinn karakter á rýmið, helluborði, bakarofn, innbyggð uppþvottavél, tengi fyrir þvottavél.
Stofa / borðstofa er með parket á gólfi, stórir gluggar, fallegt útsýni. Útgengt út á skjólgóðar svalir til suð-austurs.
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum. Útsýni yfir borgina til esjunnar.
Baðherbergi er flísalagt á veggjum og dúklagt gólf. handlaug, wc og baðkar með sturtu-aðstöðu.
Sérgeymsla er skráð 2,8 m2 samkv. HMS og er í sameign á jarðhæð
Sameignin er snyrtileg, þá er sameiginlegt
þvotta og þurrkherbergi á jarðhæð ásamt
hjóla / vagnageymslu.
Rafhleðsla er fyrir tvo bíla á sameiginlegu
bílastæði hússins.
Staðsetningin er góð, stutt í alla þjónustu í Skeifunni og einnig er stutt í útivistarparadísina í Laugardalnum.
Einnig er örstutt í Leikvöllinn Ljósheima, stutt í Menntaskólann við Sund og leikskólann Langholt.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.