Fasteignaleitin
Skráð 5. ágúst 2026

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
125 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
48.700.000 kr.
Fermetraverð
389.600 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
911050826
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR Á HINUM VINSÆLA STAÐ Í SANTA ROSALIA:
*FALLEGAR ÍBÚÐIR MEÐ STÆÐI Í BÍLAKJALLARA – GLÆSILEGT RESORT*


Vandaðar og fallegar íbúðir á frábærum stað í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm. SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Hægt er að velja um íbúðir á jarðhæð með sér garði, miðhæðir með svölum eða efstu hæð með þakverönd. Glæsileg græn svæði og sundlaugargarður.

Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm. Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Sjón er sögu ríkari. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er nýr og glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum, ýmissi þjónustu og frábæru útsýni yfir vatnið. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.

ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA.
Þessar íbúðir eru að fara hratt.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034  0034 615112869.


Nánari lýsing: 
Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými með útgengi út á góðar svalir/verönd. Tvö eða þrjú svefnherbergi með góðum fataskápum og tvö baðherbergi. Sér stæði í bílakjallara og geymsla. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia lóninu, með frábærri sólbaðsaðstöðu, strandarstemningu og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum. 

Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð (gengi 1EVRA=145ISK)
3ja herb. íbúð (tvö svefnh. + tvö baðh.): verð frá 303.000 Evrum (43.900.000 ISK) + kostn. við kaupin.
4ra herb. íbúð (þrjú svefnh. + tvö baðh.): verð frá 336.000 Evrum (48.700.000ISK) + kostn. við kaupin.
 
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar 2026 / 2027.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandaðaða eign með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni. Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, svalir, golf, sundlaugargarður, 
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
911050826

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureiturinn D1 409
Orkureiturinn D1 409
108 Reykjavík
141.4 m2
Fjölbýlishús
322
1117 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Skoða eignina Nónhamar 2
Efsta hæð
Skoða eignina Nónhamar 2
Nónhamar 2
221 Hafnarfjörður
109.1 m2
Fjölbýlishús
43
769 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7A íb.301
Bílastæði
Eirhöfði 7A íb.301
110 Reykjavík
137.3 m2
Fjölbýlishús
4
1034 þ.kr./m2
141.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb101
Opið hús:15. sept. kl 17:00-17:30
Eskiás 10 íb101
210 Garðabær
122 m2
Fjölbýlishús
43
942 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin