Skráð 23. feb. 2026

Ljósheimar 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
108.4 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
78.450.000 kr.
Brunabótamat
56.800.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1958
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2022068
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
9
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já, austur og vestur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt 3-4 herbergja 108,4 fm. íbúð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi við Ljósheima 4, Reykjavík.  Íbúðin er skráð 102,6 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða borðstofu og stofu, tvennar svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi.  Sérgeymsla 5,8 fm. er staðsett í sameign.  Gott húsfélag og virkt samstarf, húsvörður er í húsinu. 
Íbúðin er laus við kaupsamning / eftir samkomulagi.

Falleg og fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, heilsugæslu, skóla og verslanir. Jafnframt eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í Laugardalnum. Þetta er vel staðsett eign, björt og með fallegu útsýni.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR 

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is


Nánari lýsing: 
Góð aðkoma er að húsinu, hitalögn er í stétt fyrir framan.  Húsið er klætt að utan, stigagangur snyrtilegur með nýlegri lyftu. 
Forstofa er með fataskáp, parket á gólfum.  Rúmgott forstofuhol sem tengir saman helstu vistarverur. Nýleg brunavarnarhurð er inn í íbúð.
Eldhús er með eldri innréttingu og góðum borðkrók.  Stór og bjartur opnanlegur gluggi, korkur á gólfum. 
Borðstofa og stofa er í einstaklega björtu og rúmgóðu rými, parket á gólfum. Úr stofu er útgengt út á svalir til vesturs um 7,3 fm.  Mjög fallegt útsýni er úr alrými og stofu.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með fataskápum, parket á gólfum. Úr hjónaherbergi er gengið út á 3,9 fm. svalir til austurs.  Barnaherbergið er bjart með gluggum til vesturs, fataskáp og parket á gólfum.  Á svefnherbergisgangi eru góðir fataskápar. 
Möguleiki er að útbúa þriðja svefnherbergið (skv. eldri teikningum) með því að setja upp vegg í stofu.
Baðherbergi er með fallegri hvítri vaskinnréttingu, sturtuklefa og salerni.  Góður opnanlegur gluggi, dúkur á gólfum.  Tengi er fyrir þvottavél. Nýleg hurð og vaskinnrétting er á baðherbergi.
Sérgeymsla íbúðar 5,8 fm. er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu með góðu aðgengi að utan.
Þvottahús er sameiginlegt, staðsett í sameign með þvottavél og þurrkara fyrir íbúa í eigu húsfélags. Stórt þurrkherbergi er fyrir innan.  
Bílastæði eru sameiginleg á lóð.  Garður er sameignlegur, stór og gróinn.

Viðhald og endurbætur síðustu ára:
2024 var skipt um skólp og vatnslagnir vinstra megin í stigaganginum. Skipt var einnig um gler að hluta.
2004-2005 voru framkvæmdir á skólpi, frárennsli og dren. Einnig var skipt um rafmagnstöflu í sameign.
1998-2000 var húsið klætt að utan og farið í þakviðgerðir.

Hlutfall íbúðar í matshluta 02 er 2,68 % en í húsi 1,82 %. Hlutfall í lóð 1,78 %, sjá nánar í eignaskiptayfirlýsingu.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Remax fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kuggavogur 19
Bílastæði
Skoða eignina Kuggavogur 19
Kuggavogur 19
104 Reykjavík
99.8 m2
Fjölbýlishús
312
771 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 1 - íbúð 405
Bílastæði
Opið hús:25. feb. kl 17:00-17:30
Dugguvogur 1 - íbúð 405
104 Reykjavík
115.3 m2
Fjölbýlishús
413
840 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Arkarvogur 1 íbúð 501 Þaksvalir
Bílastæði
Opið hús:25. feb. kl 17:00-17:30
Arkarvogur 1 íbúð 501 Þaksvalir
104 Reykjavík
101.8 m2
Fjölbýlishús
312
1237 þ.kr./m2
125.900.000 kr.
Skoða eignina Álfheimar 31
Skoða eignina Álfheimar 31
Álfheimar 31
104 Reykjavík
69.5 m2
Fjölbýlishús
211
891 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin