Fasteignaleitin
Skráð 28. júlí 2025

Valshlíð 1 - 203

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
119.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
1.005.872 kr./m2
Fasteignamat
47.550.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532598
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
03
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Björt og rúmgóð 4ja herbergja íbúð á 2. hæð á vesturhlið Hlíðarhorns.
Valshlíð 1 - Íbúð 203. Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. 

Þrír kaupmöguleikar í boði. 
* Hlutdeildarkaup 
* Þarft einungis 10% útborgun
* Búseturéttur 

Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:
Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð er 119,2 fm þar af 7,2 fm geymsla í kjallara. Íbúðin er gegnumlýst og skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými, tvennar svalir, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 2.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er inn gang inn í vel skipulagt alrými, eldhús og stofa/borðstofa með útgengi á svalir í vestur. Eldhús með eyju. Ljós eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa. Falleg blöndunartæki úr burstuðu stáli. Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og útgengi á svalir í austur. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting og speglaskápur. Blöndunartæki úr burstuðu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu, leirljósum gólfflísum og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0006.

Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir. 


Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
5. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 19
Bílastæði
Opið hús:10. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Hringhamar 19
Hringhamar 19
221 Hafnarfjörður
191.8 m2
Fjölbýlishús
312
396 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 17
Opið hús:10. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Hringhamar 17
Hringhamar 17
221 Hafnarfjörður
58.8 m2
Fjölbýlishús
211
995 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Skoða eignina Pósthússtræti 1
Bílastæði
Opið hús:10. mars kl 16:30-17:00
Pósthússtræti 1
230 Reykjanesbær
101.8 m2
Fjölbýlishús
312
673 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Brekkustígur 8
Skoða eignina Brekkustígur 8
Brekkustígur 8
101 Reykjavík
83.9 m2
Fjölbýlishús
312
893 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin