ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Fallegt og vel skipulagt raðhús á Flúðum.
Húsið er timburhús klætt að utan með litaðri smábáru og timbri í bland, gluggar og hurðir eru ál/tré, stálklæðning er á þaki.
Heildarstærð eignarinnar er 133,4m2 og er sambyggður bílskúr 33,5m2 þar af.
Að innan skiptist eignin í forstofu, baðherbergi, þvottahús, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús auk bílskúrs.
Húsið skilast fullbúið eins og segir hér að neðan:
Útveggir: Allir útveggir einangraðir, rakasperra, gifsklæddir, sandspartslaðir, grunnaðir og málaðir með Soft sand lit frá Sérfefni
Berandi innveggir: Allir berandi innveggir gifsklæddir,sandspartlaðir grunnaðir og málaðir með Soft sand lit frá Sérefni
Léttir innveggir: Léttir veggir eru gifsklæddir á stálstoðum 70mm, einangraðir, sandspartslaðir grunnaðir og málaðir málaðir með Soft sand lit frá Sérefni
Loft: Einangrað og rakasperra. Enso dúkur í loftin litur 495 Ac Poivere, nema þvottahús, baðherbergi og bílskúr. Þau loft eru gifsklædd, sandspörsluð og máluð með Soft sand lit frá Sérefni
Gólfefni og flísar á gólf og veggi: Parket kemur frá Agli Árnasyni, Vicotira Ivory, flísar koma frá Agli Árnasyni Terra crea Corda frá Kronos.
Rafmagn: Rafmagn fullbúið og ljós komin upp. Efni frá S. Guðjónssyni.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætistæki, vaskar, klósett og handklæðaofn kemur frá Ísleifi Jónssyni.
Speglar/sturtugler: Speglar og sturtugler kemur frá Íspan, sturtugler grátt.
Innréttingar: Innréttingar koma frá Scavolini, Ítalskar gæðainnréttingar og tæki koma frá Rafha.
Borðplötur: Borðplötur - kvarts kemur frá S. Helgasyni litur Luna
Tæki: Ofn, spanhellurborð, innbyggð vifta, uppþvottavél, kæli og frystiskápur kemur frá Rafha.
Bílaplan er steypt með snjóbræðslu, lóðin afhendist tyrfð.
Steyptur pallur með heitum potti er á baklóð.Sorptunnuskýli fyrir 4 tunnur fylgir.
Gott og vel skipulagt fjölskylduhús á flottum stað á Flúðum.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.