Fasteignasalan TORG kynnir: Fallegt parhús á vinsælum stað með óhindrað útsýni neðan götu við Bakkasmára í Kópavogi, húsið er skráð 194,6 fm á tveimur hæðum þar af 29,2 fm bílskúr. Efri hæð er með aukinni lofthæð og skiptist í forstofu, forstofuherbergi, gestasnyrtingu, eldhús með vandaðri innréttingu og tækjum, stofur eru bjartar og stórar með miklu útsýni og stórar suð-vestur svalir. Á neðri hæð eru 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari upplýsingar veitir Þóra, fasteignasali í gsm: 822-2225.
Sækið söluyfirlit hér.Nánari lýsing:Efri hæð: Forstofa með góðum fataskápum og náttúruflísum á gólfi.
Forstofuherbergi með svefnlofti og parketi á gólfi.
Hol með náttúruflísum á gólfi.
Gestasalerni með náttúruflísum á gólfi og lítilli innréttingu.
Stofa / borðstofa er stór og björt með aukinni lofthæð, vandað gegnheilt parketi á gólfi og útgengi á stórar suð-vestur svalir með miklu útsýni.
Eldhús með vandaðri kirsuberjainnréttingu og tækjum, náttúruflísar á gólfi, eldhúsið er að hluta opið inn í stofu og með aukinni lofthæð.
Neðri hæð: Steyptur stigi er milli hæða, stiginn er lagður teppi.
Svefnherbergisgangur með harðparketi á gólfi, útgengi á hellulagða verönd í garðinum með heitum potti.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólfi, falleg innrétting, baðkar og flísalagður sturtuklefi.
Svefnherbergi eru
3 á hæðinni, öll með harðparketi á gólfi og fataskápur í hjónaherbergi. Opnað hefur verið milli tveggja herbergja en lítil framkvæmd að loka aftur. Góður fataskápur er á svefnherbergisgangi.
Þvottahús með flísum á gólfi.
Bílskúr er 29,2 fm af heildar eigninni og fullbúinn. Bílskúrinn er flísalagður og nýttur sem herbergi og geymslurými í dag. Hitalögn er í hellulögðu plani við bílskúr og góð bílastæði við húsið.
Lóð / garður, fallega gróinn með gróðurbeðum og tyrfðri lóð, hellulagðar gönguleiðir og timburpallur með skjólvegg framan við húsið.
Húsið lítur vel út að utan og þak hefur verið endurnýjað.
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir lögg.fasteignasaliFasteignasölunnar Torg sími 822-2225 eða thora@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila,
en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og
ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.