Fasteignaleitin
Skráð 27. jan. 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
162 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
84.700.000 kr.
Fermetraverð
522.840 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
100280124
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Svalir
Stórar verandir með glæsilegu útsýni
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*EINSTÖK GOLFVILLA Á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ*
Stórglæsilegt, rúmgott einbýlishús með einkasundlaug og einstöku útsýni  á hinum vinsæla Las Ramblas golfvelli, um 50 mín akstur suður af Alicante. Húsið er á tveimur hæðum, með stórum veröndum.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. karl@spanareignir.is. Berta Hawkins, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is. GSM 0034 615 112 869.


Á neðri hæð eru 4 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Gengið út á  stóra verönd frá tveimur af svefnherbergjunum.
Á efri hæð er stórt eldhús, vel tengt stofu og borðstofu í opnu rými. Stór verönd með frábærri grillaðstöðu og fallegu útsýni yfir gróið væði. 
Notalegt og rúmgott fjölskylduhús.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað á smekklegan hátt.

 Einkasundlaug. 
Selst með húsgögnum.

Húsið er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romera, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl.

Verð: 565.000 Evrur. (ISK 84.700.000,- miðað við gengi 1E=150ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa  að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.


Eiginleikar: útsýni, air con, BBQ, einkasundlaug, geymsla, golf, endursölueign,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Lomas de Cabo Roig
SPÁNAREIGNIR - Lomas de Cabo Roig
Spánn - Costa Blanca
110 m2
Einbýlishús
423
784 þ.kr./m2
86.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
190 m2
Einbýlishús
423
436 þ.kr./m2
82.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
135 m2
Parhús
533
644 þ.kr./m2
87.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
128 m2
Einbýlishús
423
691 þ.kr./m2
88.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache