Ragnar Þorsteinsson, löggiltur fasteignasali og LIND fasteignasala kynna glæsilega þriggja herbergja íbúð með aukinni lofthæð á 1. hæð í viðhaldslitlu fjölbýlishúsi við Urriðaholtsstræti 30 í Garðabæ. Birt stærð er 103,2 fm þar af geymsla 6,6 fm. Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu og sérafnotareitur með heitum potti. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhaldið. Húsið er einangrað að utan, álklætt að hluta og gluggar ál-tré.Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorsteinsson, löggiltur fasteignasali í síma 897 3412 eða á ragnar@fastlind.isNánari lýsing:Forstofa: góður fataskápur, parket á gólfi.
Eldhús: Falleg ljós innrétting, innfelld uppþvottavél, eyja með spanhelluborði og gufugleypi, Parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Mjög rúmgóðar, opnar við eldhús, stórir gluggar, útgengt út á hellulagða verönd.
Sérafnotareitur: 11,5 fm, hellulagður með heitum potti. Vegghleðslu með óðalsstein.
Baðherbergi: mjög rúmgott með upphengdu salerni, sturtu með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, spegill með lýsingu, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Innaf baðherbergi, flísar á gólfi, vinnuborð með vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi.
Hjónaherbergi: með fataskápum, parket á gólfi.
Herbergi: með fataskáp, parket gólfi.
Geymsla: Á hæðinni, 6,6fm.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi, tengi fyrir rafhleðslustöð.
Garður: Sameiginlegur garður.
Innréttingar er frá Bræðurnir Ormsson - HTH, lýsing er undir efri skápum. Eldhústæki er einnig frá Bræðunum Ormsson, innbyggð uppþvottavél, ísskápur með frysti, bakaraofn, spanhelluborð og gufugleypir. Innihurðir og flísar frá Birgisson. Parket frá Álfaborg.
Húsið er 5 hæða fjölbýlishús með 13 íbúðum, einum stigagangi og einni lyftu. Heildarfjöldi bílastæða er 25. 15 bílastæði eru á lóð og 10 stæði í lokuðu bílastæðahúsi. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með álklæðningu. Gluggar og hurðir eru ál/tré og því húsið viðhaldslítið.
// VILDARKORT LINDAR //Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum:
Parki, Z-brautir og gluggatjöld, S. Helgason steinsmiðja, Húsasmiðjan, Húsgagnahöllin, Dorma, Betra Bak, Vídd, Sýn, Flugger litir og Securitas.
Allar nánari upplýsingar veitir:
RAGNAR ÞORSTEINSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI | S. 897-3412 | RAGNAR@FASTLIND.ISUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.