Til leigu vandað skrifstofuherbergi á 12. hæð við Kringluna 7 í Reykjavík. Laust til afhendingar strax.
Um er að ræða snyrtilegt skrifstofuherbergi í vönduðu skrifstofuhúsnæði með aðgangi að sameiginlegri setustofu, fundarherbergi og kaffistofu. Hentar vel fyrir einstaklinga eða minni fyrirtæki sem vilja hafa aðstöðu í góðu skrifstofuumhverfi. Húsnæðið er með parketi á gólfum og kerfislofti með innbyggðri lýsingu.
Möguleiki er á að leigja eitt eða tvö skrifstofuherbergi á sömu hæð.
Rekstrarkostnaður er innifalinn í leiguverði. Virðisaukaskattur bætist við leigufjárhæð.
Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan leigumiðlara í síma 824-6703, olafur@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.