Fasteignaleitin
Skráð 7. júní 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
225 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
262.500.000 kr.
Fermetraverð
1.166.667 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
800090924
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Stórar verandir og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á BESTA STAÐ Á LAS COLINAS GOLFVELLINUMt*

Glæsilegt og vel hannað nýtt  einbýlishús á tveimur hæðum. Stór garður með einkasundlaug. Húsið er á góðum stað í Mimosa hverfinu, einum besta stað á Las Colinas golfvellinum. Örstutt göngufæri í klúbbhúsið, æfingasvæðið og 1. teig. Gott útsýni, 
Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
GOTT SKIPULAG,  fjögur svefnherbergi, öll með sér baðherbergi og auk þess gestasnyrting, rúmgóð stofa, eldhús og borðstofa í björtu opnu rými með góðri tengingu við stóra verönd. Stór sér garður með einkasundlaug, flottu bbq svæði og sólbaðsaðstöðu. Þakverönd með flottu útsýni. Yfirbyggt bílastæði fyrir tvo bíla og tengi fyrir hleðslustöð.
Góð geymsla.
Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10-15 mín akstur á Campoamor ströndina.

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is

Nánari lýsing:

Aðal hæð: Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt opnu eldhúsi. Stór hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Gestasnyrting.

Neðri hæð.  Þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með sér baðherbergi. Gott sameiginlegt rými, td. fyrir vinnuaðtöðu, vínkjallara, tómstúndir eða annað. Rúmgott þvottahús/geymsla.
Útgengi út á verönd og garðinn frá öllum svefnherbergjum neðri hæðar. Stór sér garður, þar sem hægt er að vera með púttvöll, alls konar ávaxtatré ofl.

Hér er um eitt glæsilegasta einbýlishúsið á Las Colinas að ræða og frábæra staðsetningu.
Húsið er í byggingu, en afhendist tilbúið í september 2024.

Stæði fyrir tvo bíla inni á lokaðri lóð.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Lo Romero.
Ca. 10-15 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Frábær eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 1.750.000 evrur (262.500.000 ISK) + kostn.  gengi 1Evra=150 ISK

AÐEINS EITT HÚS Í BOÐI.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum, ljósum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: http://www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, golf, þakverönd, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
800090924

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lautarvegur 20A
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Lautarvegur 20A
Lautarvegur 20A
103 Reykjavík
238 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
523
1050 þ.kr./m2
250.000.000 kr.
Skoða eignina Rjúpnahæð 15
Skoða eignina Rjúpnahæð 15
Rjúpnahæð 15
210 Garðabær
259.5 m2
Einbýlishús
725
944 þ.kr./m2
245.000.000 kr.
Skoða eignina Bæjarlind 7
Bílastæði
Skoða eignina Bæjarlind 7
Bæjarlind 7
201 Kópavogur
229.4 m2
Fjölbýlishús
423
1177 þ.kr./m2
270.000.000 kr.
Skoða eignina Sunnubraut 47
Skoða eignina Sunnubraut 47
Sunnubraut 47
200 Kópavogur
195.9 m2
Einbýlishús
513
1276 þ.kr./m2
250.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin