LIND fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli með sérinngangi og stæði beint fyrir framan sérinngang. Góð staðsetning þar sem að það er örstutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, heilsurækt, heilsugæslu og skemmtilegar gönguleiðir. Eignin skiptist í forstofu, hol og gang þar sem útgengt er inn í sameign og geymslu, góða stofu með útgengi út á verönd, eldhús, fjögur svefnherbergi, og baðherbergi.
Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt sér geymslu á jarðhæð.
Stærð eignar er 123,7 fm. skv. FMR. en þar af er geymsla 3,3 fm.Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 862 0880 eða herdis@fastlind.is
Smelltu hér og fáðu söluyfirlit strax.Nánari lýsing: Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Hvít innrétting með beykiköntum í U með ljósri borðplötu og eldhúskrók.
Stofa: Parketlögð, rúmgóð og björt með stórum glugga. Gengið er út á svalir út frá stofu sem snúa í suð-austur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og fataskáp.
Svefnhverbergi III: Plastparket á gólfi. (Skv. upprunalegum teikningum var það teiknað sem baðherbergi)
Svefnherbergi IIII: Parket á gólfi með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, hvít innrétting með ljósri borðplötu, frístandandi sturtuklefi og aðstaða fyrir þvottavél. (Skv. upprunalegum teikningum var það teiknað sem þvottahús)
Geymsla: Er með máluðu gólfi, timburhillum og er 3,3 fm.
Íbúðin er hjólastólavæn og er með mynd-dyrasíma.Sér bílastæði er beint fyrir utan sérinngang inn í íbúðina.
2 hleðslustöðvar eru á bílastæði þar sem hver og einn hleður á sinn kostnað.Eignin hefur fengið gott viðhald á síðustu 5 árum:- Skipt um glugga þar sem þörf hefur verið á.
- Múrviðgerðir á húsi.
- Hús málað að utan.
- Stigahús málað og skipt um teppi.
- Skipt verður um útidyrahurð á sérinngangi á kostnað seljanda.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú
30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum:
Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.** Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
** Frítt söluverðmat á þinni eign hér eða hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880 / herdis@fastlind.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.