Falleg, björt og vel skipulögð endaíbúð með sérinngangi og sólpalli í hinu vinsæla Norðlingaholti* Sólpallur með skjólveggjum til suð-vesturs.
* Bílastæði í lokuðum bílakjallara
* Sérinngangur af jarðhæð
* 2-3 herbergja ( geymsla er í dag nýtt sem skrifstofa / gestaherbergi )
* Endurnýjað parket og fataskápar
* Gott aðgengi og íbúðin var sérhönnuð fyrir hreyfihamlaða
* Rúmgóð útigeymslaNánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar er 91,30 m2 samkv. HMS.
Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu / borðstofu, eldhús, þvottahús, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, útigeymslu og bílastæði í bílageymslu.Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofa /
borðstofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi, útgengt út á rúmgóðan sólpall.
Eldhús er opið með stofu, hvít innrétting með góðu skápaplássi og búrskáp, steinn á borðum. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti, helluborð og vifta.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum.
Geymsla er innan íbúðar með parket á gólfi og nýtist í dag sem
skrifstofa / gestaherbergi / geymsla.Baðherbergi er flísalagt með innréttingu með handlaug, upphengdu wc og "walk-in" sturtu
Þvottahús inn af eldhúsi, flísalagt og með skolvaski og tengjum. Opnanlegur gluggi. Góðar hillur þar til mótsvið.
Útigeymsla er með rafmagni og rafmagnsofni (frostfrí)
Bílastæði er í lokaðri bílageymslu, þar er sameiginleg þvottaaðstaða með háþrýstidælu og ryksugu.
Í sameign á hæðinni er
hjóla og vagnageymsla ásamt
sér-geymslurými fyrir íbúðina í sameiginlegri geymslu.
Frábær staðsetning í Norðlingaholti. Göngufæri er í grunnskóla, leikskóla án þess að fara yfir götu, bónusverslun og útivistarperlur, Heiðmörk og Elliðaárdal.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.