Domusnova Akranesi og Ragg Rún lögg.fasteignasali kynna: Mjög svo fallegt og mikið endurnýjað 172fm einbýlishús að meðtöldum 52 fm bílskúr. Reynigrund 8
Eignin skiptist í forstofu, eldhús,stofu sem og borðstofu með útgang út á stóran suður sólpall með heitum potti. Hjónaherbergi og 3 góð barnaherbergi. Baðherbergi, þvottahús og rúmgóðan tvö faldan bílskúr með herbergi og snyrtingu, bílskúr. Húsið er timburhús með skriðkjallara. ** Bókið einkaskoðun **
Lýsing eignar:
Forstofa: Rúmgott með flísum á gólfi.
Eldhús: Parket á gólfi með fallegri hvítri innréttingu, bosh ofn og örbylgjuofn, ásamt innbyggðri uppþvottavél. innaf eldhúsi er síðan þvottahús með flísum á gólfi. En þar er líka inngangur inn í húsið.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi II. Gott herbergi með parket á gólfi
Svefnherbergi III. Gott herbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt uppgert baðherbergi með fallegri hvítri innréttingu og skápum. Sturtuklefi og baðkar. Gluggi á baðherbergi. Flísalagt í hólf og gólf.
Stofa/borðstofa: Góð stofa sem og borðstofa með parket á gólfi. Útgangur út á suður sólpall með heitum potti. Sólpallurinn er stór og nær vestur fyrir húsið.
Þvottahús: Rúmgott snyrtilegt þvottahús með flísum á gólfi, vélar í vinnuhæð bakinngangur.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með inngönguhurði. Hiti, rafmagn, vatn, snyrting, vaskur, hiti í gólfi, herbergi og geymsluloft. Bílskúrshurðaopnari. Gott herbergi svefnherbergi innaf parketlagt.
Gott bílastæði fyrir rúmlega 8 bíla.
Endurnýjað af fyrri eiganda.
-2007; Innihurðar, allt gólfefni (flísar í forstofu, þvottahúsi), skápar. Baðherbergi tekið í gegn, flísalagt í hólf og gólf. Ofna- og vatnslagnir endurnýjaðar.
-Gluggar og gler endurnýjað að hluta frá árinu 2007-2019, ásamt opnanlegum fögum. Gluggakistur í herbergjum og stofu.
-2013; Svalahurð og pallur ásamt rafstýrðum heitum potti.
-2017; Sturtugler- og botn ásamt blöndunartækjum.
-2018; Járn á þaki, hús og bílskúr. Rafmagnstafla endurnýjuð.
-2019; Rafmagnstenglar og slökkvarar. Baðinnrétting, sérsmíðuð, síðan í okt‘19. Varmaskiptir síðan í desember 2019.
Endurnýjað af eiganda
-2022/23; Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt heimilistækjum
-2022/23; Loft í stofu endurnýjað og samflett parket á allri eigninni.
Um er að ræða mjög fallegt og vel viðhaldið einbýlishús á þessum rólega og fallega stað á Grundunum. Stutt í Grundarskóla sem og Jaðarsbakka.
Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.