Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: HRAFNHÓLAR - 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ.NÁNARI LÝSING:Góð 3ja herbergja endaíbúð í Hrafnhólum nr. 2 í efra Breiðholti.
Stutt í alla þjónustu, verslun, skóla, leikskóla og einstakar gönguleiðir í Elliðaárdalnum.
Íbúðin sjálf er 73,3 fm ásamt sérgeymslu 5,5 fm.
Samtals er því eignin 78,8 fm. og samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, 2 svefnherbergjum og baðherbergi
Snyrtileg sameign, að sögn eiganda var skipt var um teppi og máluð sameign innan 2019 og húsið yfirfarið og lagfært á árunum 2016 - 2017.
Íbúðin var mikið endurnýjuð að innan 2011, m.a innréttingar, eldhús, baðherbergi og fl. Allir ofnar endurnýjaðir 2018 að sögn eiganda.
Komið inn í anddyri/hol með ljósum fataskápum og parketi.
Eldhúsið er bjart með borðkrók og ljósri viðarinnréttingu, ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Baðherbergið er flísalagt, tengi fyrir þvottavél, innrétting og sturta og gluggi.
Hjónaherbergið er rúmgott með ljósu parketi og góðu skápaplássi.
Barnaherbergið með parketi, án skápa.
Stofan er rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu, ljóst parket og útgengt á suðaustur svalir. Mjög fallegt útsýni til fjalla og yfir borgina.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.