Fasteignaleitin
Skráð 6. maí 2026

Brekkubyggð 5

EinbýlishúsNorðurland/Blönduós-540
174.9 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
44.900.000 kr.
Fermetraverð
256.718 kr./m2
Fasteignamat
52.450.000 kr.
Brunabótamat
101.800.000 kr.
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2136700
Landnúmer
144852
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Búið að endurnýja gler og glugga að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Domus fasteignasala á Norðurlandi vestra kynnir vel staðsett einbýlishús við Brekkubyggð 5 á Blönduósi.

Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband um eignina.

Um er að ræða 175 fm eign með bílskúr, byggða árið 1973, á eftirsóttum stað með einstöku útsýni yfir Húnaflóa.

Frá húsinu nýtur víðáttumikið útsýni til vesturs yfir Húnaflóa, Vatnsnes, Strandir og til fjalla. Á efri hæð eru svalir sem bjóða upp á stórkostlega kvöldsýn og fallegt umhverfi.

Eignin skiptist í:

Neðri hæð:
Forstofa, hol, stofa, eldhús, búr, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús með útgengi á baklóð.

Efri hæð:
Stofa, tvö svefnherbergi, sauna og snyrting með sturtu, auk svala með stórbrotnu útsýni.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð með fataskáp og fatahengi.
Hol og stofa: Frá forstofu er komið inn í hol, þaðan eru tvö þrep niður í rúmgóða stofu. Parket er á gólfi.
Eldhús: Eldhús er með borðkrók og flísum á gólfi. Innrétting var vönduð í upphafi en hefur elst. Kalt búr er á gangi við eldhús.
Þvottahús: Rúmgott með nýlegum innréttingum, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Útgengt á baklóð.
Svefnherbergi: Alls fjögur herbergi, tvö á hvorri hæð. Hjónaherbergi er með rúmgóðum skápum.
Baðherbergi: Flísalagt með snyrtilegri innréttingu.
Rúmgóð sauna er inn af baðherbergi á efri hæð.
Efri hæð / baðstofa: Notaleg setustofa undir súð með útgengi á vestursvalir. Möguleiki er á að loka svölunum og stækka þannig rýmið. 
Bílskúr: Sér bílskúr, 25,6 fm.

Viðhald og ástand:
Svalir þarfnast endurbóta. Núverandi lausn hefur verið gerð til bráðabirgða þar sem þéttiefni var sett í sprungur til að stöðva leka, og hefur það skilað góðum árangri síðastliðið sumar. Hins vegar er halla á svölum ábótavant, sem veldur því að regnvatn á ekki greiða leið frá þeim og getur leitt til raka í veggjum.
Rakablettir sjást í lofti í stofu og eru þeir tilkomnir vegna fyrri leka frá svölum. Um er að ræða eldri ummerki sem ekki hefur verið gengið frá að fullu.
Þakkantur eignarinnar þarfnast viðhalds og endurbóta. 

Endurbætur:
-Flísar lagðar á þvottahús og forstofu
-Skipt um allt gler og hluta glugga fyrir nokkrum árum
-Nýlegir ofnar í stofu og herbergjum á neðri hæð
-Parket lagt á báðar hæðir
-Nýr fataskápur í forstofu
-Tenging fyrir hraðhleðslustöð (hleðslustöð í leigu frá Orka náttúrunnar)

Lóð: 
Stór og rúmgóð lóð fylgir eigninni með góðu rými til útivistar.
Eign sem býður upp á mikla möguleika á fallegum stað með einstöku útsýni.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/01/202129.900.000 kr.32.000.000 kr.174.9 m2182.961 kr.
13/03/20079.723.000 kr.16.800.000 kr.174.9 m296.054 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1980
25.6 m2
Fasteignanúmer
2136700
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.450.000 kr.

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Aðalgata 16
Skoða eignina Aðalgata 16
Aðalgata 16
580 Siglufjörður
158 m2
Einbýlishús
726
347 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Lokastígur 7
DJI_0487.JPG
Skoða eignina Lokastígur 7
Lokastígur 7
101 Reykjavík
53.8 m2
Fjölbýlishús
211
965 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Bílskúr
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Hlíðarvegur 42
625 Ólafsfjörður
248.2 m2
Einbýlishús
625
274 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Kirkjuvegur 3
625 Ólafsfjörður
170.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
615
247 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin