RE/MAX kynnir Andrésarbrunn 7 bjarta og vel skipulagða fimm herbergja endaíbúð á efstu hæð.
Bílastæði í þriggja stæða bílageymslu. Góðar suðursvalir
Stutt er í skóla, leikskóla og verslun.
Lyfta er í húsinu.
Smellið á link til að sjá eign í 3DSmellið á link til að fá söluyfirlit sent strax.Eignin skiptist í: Stofu / Borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, anddyri, þvottahús, geymslu og bílastæði.
Nánari lýsing:Anddyri með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Stofan og borðstofan eru samliggjandi og mynda bjart og rúmgott rými með parketi á gólfi og útgengt á 7,5 fm suðursvalir.
Eldhúsið er með góðri eldhúsinnréttingu og miklu skápaplássi og vinnurými. Parket á gólfi og gluggi til suðurs.
Hjónaherbergið er rúmgott með parket á gólfi, tvöföldum fataskáp og gluggum til suðurs og gólfsíður gluggi til vesturs.
Svefnherbergi II, III og IIII eru með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Gluggar til norðurs.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuaðstöðu. Baðherbergisinnrétting og upphengt salerni. Gluggi til vesturs.
Þvottahúsið er rúmgott með flísum á gólfi, hillumog með tengi fyrir þvottavel og þurrkara.
Svalirnar eru 7,5 fermetra og snúa til suðurs.
Sameignin er snyrtileg með teppi á stigum og pöllum, lyfta milli hæða og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Lóðin: er sameiginleg með heildareigninni Andrésbrunni 1-7. Sameiginleg bílastæði eru norðan megin húss.
Húsið er 6 íbúða 4 hæða staðsteypt fjölbýlishús með lyftu.
Á jarðhæð eru 2 bílageymslur fyrir 3 bíla hvor, sér geymsla íbúðar og sameiginleg hjóla og vagngeymsla.
Íbúðin er staðsett á góðum stað þar sem stutt er í leikskólan Geislabaug og Sæmundarskóla. Góða almenningssamgöngur í nágrenni og þá er stutt í alla helstu þjónustu og verslanir.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@remax.is -Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900,