Helgafell fasteignasala ehf. kynnir:NEÐSTAKLIF 5, GLÆSILEG SUMARHÚSALÓÐ Á EINSTÖKUM STAÐ Í HÚSAFELLI.ÝTTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLITLóðin er EIGNARLÓÐ, 3.275 fm. að stærð í hinni skipulagðri frístundabyggð í landi Húsafells III.Lóðinni fylgir réttur til afhendingar á heitu og köldu vatni úr brunni við götu. Stofngjald fyrir réttindin hefur þegar verið greitt.
Ljósleiðari komin við brunn í götu. Innifalið er stofngjald fyrir ljósleiðarann.
Gjald fyrir vatnsnotkun og notkun ljósleiðara fer eftir gjaldskrá landeiganda á hverjum tíma.
Kvöð um greiðslu árgjalds, kr. 30.000,- sem dekka á viðhald á vegum, merkingum, lýsingu, bílastæðum og þrifum á svæðinu.
Gróin og skjólsæl lóð með malarstíg að lóðarmörkum.
Lóð á einstökum stað í Húsafelli – Ekið er inn botnlanga, sem tryggir takmörkun á óviðkomandi umferð. ATH. Möguleiki að eignast lóðir að Neðstaklifi nr: 3, 4 og 5 saman eða í sitthvoru lagi. Almennt um Húsafell:Húsafell er meðal fjölsóttustu ferðamannastaða hér á landi, enda einstök náttúruperla í stórkostlegu landslagi. Veðursældin,skógurinn, heitar laugar og sú aðstaða og þjónusta fyrir ferðamenn, sem þar hefur verið komið upp á undanförnum árum, laðar til sín fjölda ferðamanna og dvalargesta á hverju ári. Húsafellsskógur er lágvaxinn birkiskógur á hrauni sem hefur myndast fyrir landnám. Vilja kunnugir meina að dalbotninn í Húsafelli sé einn af veðursælustu stöðum landsins. Húsafell er ríkt af auðlindum, bæði heitu og köldu vatni sem gerir staðinn góðan til búsetu og orlofsbyggðar.
Fjarlægð frá Reykjavík er 130 um km. og 65 km. í Borgarnes. Öll helsta þjónusta er á staðnum, veitingastaður, strandblakvöllur, sundlaug og þjónustumiðstöð. Á svæðinu eru sérlega fallegar gönguleiðir og stutt í náttúruperlur eins og Langjökul, Arnarvatnsheiði, Hraunfossa, Barnafossa og einnig er á staðnum 9 holu glæsilegur golfvöllur. Á sumrin eru gjarnan kvöldskemmtanir með varðeldi og lifandi tónlist á laugardagskvöldum. Á svæðinu er glæsilegt tjaldstæði með aðgengi að sturtum, salerni, þvottahúsi og rafmagni.
Húsafell er paradís fyrir sumarbústaðaeigendur jafnt að sumri og vetri. Allt almennt þjónustustig er stöðugt að aukast á svæðinu.
Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðunni
www.husafell.is og facebook síðu Húsafells.
Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is