Opið hús:07. mars kl 14:00-14:30
Skráð 2. mars 2026

Dalsel 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
108.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
641.873 kr./m2
Fasteignamat
67.950.000 kr.
Brunabótamat
59.660.000 kr.
Mynd af Þyrí Guðjónsdóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
Þvottahús
Garður
Bílastæði
Gæludýr leyfð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2055840
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
2,54
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Fyrirhugaðar framkvæmdir á viðgerð á þaki Dalsels 6-8, það er komin kostnaðaráætlun og framkvæmdin væntanlega samþykkt á næsta húsfundi.
Gallar
Það leka taumar úr loftræstitúðunni inni á baðherbergi þegar það er úrhellisrigning og austanátt. 
NÝTT Á SKRÁ:

Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu, falleg 4ja herbergja íbúð á 2. hæð við Dalsel 8 í Seljahverfi í Reykjavík, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, gott sjónvarpshol, eldhús, þvottahús/búr, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi og baðherbergi.
Birt stærð eignarinnar er 108,9 m², íbúð er skráð 100,8 m² ásamt geymslu í kjallara 8,1 m².  Stæði merkt 08 í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.

Nánari lýsing:

Anddyri: Parket á gólfi. Fataskápur.
Stofa/borðstofa: Björt með gluggum í austur. Svalir með svalalokun/garðskáli út frá stofu, málað gólf.
Eldhúsið: Rúmgott með hvítri innréttingu og borðkrók. Eldavél með bakaraofni. Flísar eru á milli skápa. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Flísar á gólfi.
Þvottahús/búr: Gott rými sem er innaf eldhúsi með hillum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Opið rými: Sjónvarpshol sem er fyrir miðju íbúðar – tengir önnur rými saman.
Hjónaherbergi: Rúmgott svefnherbergi. Fataskápar og parket á gólfi.
Barnaherbergi I: Lítið barnaherbergi. Parket á gólfi.
Barnaherbergi II: Rúmgott barnaherbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting og sturtuklefi, flísar á gólfi.
Geymsla:  Hillur og gólf lakkað.
Sameign:  Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Bílastæði í lokaðri bílageymslu, merkt stæði nr. 08.

Framkvæmdir á íbúð samkvæmt seljendum:
2016:  Nýr ofn í hjónaherbergi.
2018:  Nýtt parket, Haro, oak, Bretagne, plankar og Haro, Silent Pro hljóðdúkur undir frá Parket og Gólf.
2018:  Nýjar hurðir frá Birgisson settar fyrir svefnherbergi og bað.
2020:  Nýr ofn í stofu og eldhúsi.
2025:  Nýir ofnar í barnaherbergjum. 
2025:  Rafmagnstafla fyrir íbúðina var yfirfarin og skipt um nánast allar innstungur um mitt ár. Dregið aukalega fyrir þurrkara í þvottahúsi.

Viðhaldssaga hússins samkvæmt seljendum:
2017:  Eldvarnarhurð settar í fyrir allar íbúðir(nema kjallara íbúð).
2022:  Nýir gluggar og nýjar útihurðir. Þakskyggnið málað að framan og gert við litla þakið við inngang.
2024:  Nýjar lokur á aðalintak fyrir heitt og kalt vatn sem er í bílskýli.
2024:  Sett var ný loka fyrir inntakið fyrir kaldavatnið í Dalsel 8.
2025:  Nýir mælar og þrýstiloka/slaufuloka.
2025:  Sett var upp fyrir rafmagnsbíla í bílskýli um mitt árið 2025. Fólk setur upp sjálft eða leigir stöð.

Eignin Dalsel 8 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign merkt 020202, fnr. 205-5840, birt stærð 108,9 m², íbúð 100,8 m² og geymsla 8,1 m².

Eignin er mjög vel staðsett í grónu fjölskylduvænu hverfi, öll helsta þjónusta í göngufæri, örstutt í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði, heilsugæslu, Breiðholtslaug, Bókasafnið Gerðubergi og Seljakirkju. Í næsta nágrenni er fjölbreytt útivistarsvæði, þar á meðal hinn vinsæli Elliðaárdalur sem býður upp á einstaka möguleika til göngu, hjólreiða og útivistar allt árið um kring. Almenningssamgöngur eru í góðu aðgengi og Seljahverfið er mjög vel staðsett og nálægt stofnbrautum. 

Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1975
Fasteignanúmer
2055840
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
08
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.460.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engjasel 85
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Engjasel 85
Engjasel 85
109 Reykjavík
114.2 m2
Fjölbýlishús
312
603 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Engjasel 35
Opið hús:05. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Engjasel 35
Engjasel 35
109 Reykjavík
114.1 m2
Fjölbýlishús
514
605 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Hjaltabakki 8
Skoða eignina Hjaltabakki 8
Hjaltabakki 8
109 Reykjavík
101.5 m2
Fjölbýlishús
413
689 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Leirubakki 34
Skoða eignina Leirubakki 34
Leirubakki 34
109 Reykjavík
94 m2
Fjölbýlishús
312
729 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin