Fasteignaleitin
Skráð 9. sept. 2024
Deila eign
Deila

Refsholt 4

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
44.3 m2
1 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
29.900.000 kr.
Fermetraverð
674.944 kr./m2
Fasteignamat
21.600.000 kr.
Brunabótamat
13.120.000 kr.
Mynd af Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Byggt 2004
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2275957
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
Í lagi
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
Rafmagn
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsettan sumarbústað ásamt gesthúsi í landi Hálsa í Hálsaskógi við Skorradal, eitt vinsælasta sumarhúsasvæði landsins. Svæðið er þekkt fyrir fegurð, veðursæld og Skorradalsvatn skammt undan. Útsýni að Skarðsheiði og inn Skorradalinn.

Lýsing eignar: 
Gott aðgengi er að bústað og rúmgott stæði fyrir framan hús fyrir allt að 4-6 bíla. Gengið er upp á rúmgóðan pall þaðan sem aðgengi er að aðalhúsi og gestahúsi. Einstakt útsýni er frá eign.
Aðalhús: Opið sameiginlegt rými stofu og eldhúss. 
Eldhús er innréttað með neðri skápum, tvöföldum vaski á borði og hillur og glerskápur þar fyrir ofan. Innrétting með neðri skápum og skúffum ásamt helluborði. Gengið er út frá stofurými að rúmgóðum palli.
Baðherbergi: Fallegur frístandandi glerskápur, sturtuklefi, salerni, handlaug og opin skápur þar undir.
Svefnherbergi með innbyggðu rúmi og geymslupláss undir rúmi og við höfuðgafl.
Kynding aðalhúss er með nýjum rafmagnsofnum.

Gestahús Lýsing: 
Gesthús samanstendur af salerni og svefnaðstöðu þar sem gott pláss er fyrir tvö rúm.  Lítið geymslurými er framan við salerni í gestahúsi. 
Salerni ásamt handlaug og opnum skáp. Bara kalt vatn í gestahúsi.
Kynding í gestahúsi er með nýjum rafmagnsofnum.


Húsin voru máluð 2020,  birkiskógur og annar gróður fjarlægður umhverfis húsin. Settar náttúrulegar úthagaþökur umhverfis húsin sem þarf bara að slá 1-2 sinnum yfir sumarið, hlaðinn fallegur stígur úr náttúrugrjóti úr Skorradalnum og gerð snyrtileg beð framan við húsin með ýmsum fjölærum plöntum og lággróðri. Einnig sett niður líparít hring N-A megin sem hefur nýst sem útisvæði fyrir varðeld og kósýheit á kvöldin. 
Pallurinn milli húsanna var byggður samhliða húsunum og eru rúmir 60 fm og úr harðvið sem fengið hefur að grána. Pallurinn er útisvæði en þar er gott pláss fyrir útiborð, stóla og bekki. Frá pallinum er afar fallegt útsýni yfir Skessuhorn og Skarðsheiðina.


Flestir innanstokksmunir fylgir með í kaupum eftir samkomulagi og óskum kaupenda,  fyrir utan lausa persónulega muni.
Um óeinangruð bjálkahús er að ræða sem gerir það að verkum að gott loft gera húsin að afar notalegum íverustað. 
Hús og gestahús er hitað með nýjum rafmagnsofnum og hitakútur hitar vatn.
Hitaveita komin að húsi.
Myndavél og lokað hlið er við innkomu í hverfið. Félagsgjald 30.000.- pr.ár, hlið inni í þeirri tölu.
Lóðarleiga kr. 105.000.- fyrir árið og greidd í maí 2024


Svæðið er um 15 ára bústaðabyggð um 30 hús þegar komin en byggðin fer stækkandi. Í Hálsaskógi verða þó ekki fleiri en 60 lóðir. Bústaðurinn er á afar friðsælum stað við götu sem heitir Refsholt 4 og er neðarlega í byggðinni, bara tvö hús og er nr. 4 innst  í botnlanga. Ekkert verður byggt fyrir framan eða nálægt bústaðnum samkvæmt upplýsingum seljanda.
Bústaðurinn er vestan megin við Skorradalsvatn og með fallegt útsýni á vatnið og byggðina.

 
Einkar sjarmerandi og kósý sumarhús í um klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni.
Sjón er sögu ríkari.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 







 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2004
14.4 m2
Fasteignanúmer
2275957
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
3.220.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kvistás 24 Syðri-Rauðamel
Kvistás 24 Syðri-Rauðamel
311 Borgarnes
60.5 m2
Sumarhús
2
494 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Bringur 11
Skoða eignina Bringur 11
Bringur 11
806 Selfoss
54.8 m2
Sumarhús
312
527 þ.kr./m2
28.900.000 kr.
Skoða eignina Efstiás 5
Skoða eignina Efstiás 5
Efstiás 5
301 Akranes
37.4 m2
Sumarhús
312
789 þ.kr./m2
29.500.000 kr.
Skoða eignina Dalsgerði 3
Skoða eignina Dalsgerði 3
Dalsgerði 3
805 Selfoss
50.5 m2
Sumarhús
12
592 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin