Fasteignaleitin
Skráð 21. feb. 2026

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
291 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
158.000.000 kr.
Fermetraverð
542.955 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
103200226
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Góð verönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á BESTA STAÐ Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI

Glæsileg og vel hönnuð ný  einbýlishús á einni hæð í LIMA, nýju hverfi í örstuttu göngufæri frá klúbbhúsinu á Las Colinas golfvellinum, æfingasvæðinu og fyrsta teig.
Fyrsti áfangi LIMA er uppseldur, þessi hús eru í áfanga tvö og var að koma í sölu, þannig að núna er besti tíminn að velja gott hús.
Stór einkagarður með einkasundlaug á móti suðri.  Frábær staðsetning nálægt golfvellinum. Tennis- og boltavellir í næsta nágrenni og auk þess ráðgert að reisa þar lúxushótel, litla verslana- og þjónustu miðstöð og lítinn almenningsgarð þar sem hægt er að njóta útiveru. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið besta golfsvæðið á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er svæðinu best lýst með orðunum "A World Apart" eða heimur út af fyrir sig.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.  adalheidur@spanareignir.is, GSM 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869


FRÁBÆRT SKIPULAG:  Rúmgóð og björt stofa, eldhús opið við borðstofu. Á sér gangi eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, annað inn af hjónasvítunni.  Góð verönd er fyrir  framan við húsið og er hvert hús hannað með það að markmiði að skapa samfellda tengingu milli inni- og útirýmis. Rýmið er opið, bjart og nýtur sín til fulls með stórum gluggum og rennihurðum út í garð og á verönd. Andrúmsloftið er rólegt, hlýlegt og fágað þar sem hvert smáatriði er úthugsað.Sér garður með einkasundlaug, sólbaðsaðstöðu og BBQ svæði. Möguleiki er að velja hús með stórum kjallara sem hægt er að innrétta eftir óskum kaupanda.

Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir í grónu umhverfi og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa einnig aðgang að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni, ca. 10 mín í ca. 10 mín akstursfjarlægð.
Örstutt göngufæri í Las Colinas klúbbhúsið, þar sem eru glæsilegir veitingastaðir og fallegt umhverfi, líkamsræktarstöð ofl.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca,  Las Ramblas, Campoamor og Villamartin.
Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum í fallegu umhverfi.

Verð frá 1.090.000 evrur  + kostn. (158.000.000ISK + kostn. miðað við gengi 1Evra=145ISK.)
Húsin eru til afhendingar í árslok 2026 - vor/sumar 2027.

EIN BESTA STAÐSETNINGIN Á LAS COLINAS GOLF SVÆÐINU.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum, ljósum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: golf, sér garður, einkasundlaug, air con, bílastæði, BBQ,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Keldugata 4
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Keldugata 4
Keldugata 4
210 Garðabær
224.4 m2
Raðhús
725
842 þ.kr./m2
189.000.000 kr.
Skoða eignina Skeljatangi 9
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Skeljatangi 9
Skeljatangi 9
102 Reykjavík
548 m2
Einbýlishús
824
1259 þ.kr./m2
690.000.000 kr.
Skoða eignina Skólagerði 64
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Skólagerði 64
Skólagerði 64
200 Kópavogur
189.8 m2
Parhús
413
721 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Sjafnargata 14
3D Sýn
Skoða eignina Sjafnargata 14
Sjafnargata 14
101 Reykjavík
384 m2
Einbýlishús
27
1068 þ.kr./m2
410.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin