Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Borgarsíða 25 - Skemmtilegt 5 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum og með sambyggðum bílskúr á vinsælum stað í Síðuhverfi - stærð 165,6 m²
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð 107,2 m²: Forstofa, hol, eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými, snyrting, bakinngangur og bílskúr.
Efri hæð 58,4 m²: Hol, baðherbergi og fjögur svefnherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi og hvítum fataskápum. Innfelld lýsing er í lofti.
Eldhús, vönduð hvít sprautulökkuð innrétting með mjög góðu skúffu- og bekkjarplássi. Borðplata er tvískipti og er granít á hluta.
Borðstofa, stofa og eldhús eru í opnu björtu rými þar sem harðparket er á gólfum, innfelld lýsing í loftum og gluggar til þriggja átta. Úr stofu er gengið út til vesturs á timbur verönd með heitum potti.
Af holi á neðri hæðinni liggur vandaður járn stigi með viðar þrepum upp á efri hæðina.
Svefnherbergin eru fjögur, öll á efri hæðinni og öll með ljósu plast parketi á gólfi. Fataskápar eru í þremur herbergjum. Úr fjórða herberginu er gengið út á timbur svalir til vesturs.
Baðherbergi er rúmgott og flísalagt í hólf og gólf. Hvít sprautulökkuð innrétting, wc, hornbaðkar, sturta og opnanlegur gluggi.
Snyrting er á neðri hæðinni með flísum á gólfi, dökkri innréttingu með handlaug, wc og opnanlegum glugga.
Bakinngangur er í dag Sauna rými og með sturtuklefa. Gengið er í gegnum rýmið þegar farið er inn í bílskúr.
Bílskúr er skráður 33,2 m² að stærð og þar eru flísar á gólfum, rafdrifin innkeyrsluhurð og sér gönguhurð út á baklóð. Búið er að setja upp snyrtilega hvíta þvottahúsinnréttingu. Geymsluloft er yfir hluta.
Bílaplan var hellulagt árið 2021 og lagðar hitalagnir í ca tvöfalt stæði og í stétt að forstofuhurð. Engar hitalagnir eru nyrst á stæðinu né í plani meðfram bílskúr.
Annað
- Nýtt harðparket var lagt á neðri hæðina árið 2024.
- Innrétting á baðherbergi var sprautulökkuð árið 2024, sett ný borðplata, handlaug og blöndunartæki.
- Búið er að endurnýja hluta af gleri.
- Kringum húsið er falleg og vel hönnuð lóð. Fyrir framan er beð með trjágróðri og sjávarmöl og á baklóðinni er rúmgóð verönd, bæði timbur og hellur og heitur pottur. Hellulagður stígur er hringinn í kringum húsið.
- Tveir geymsluskúrar eru á lóðinni, annar nýlegur en hinn er eldri og minni.
- Lóðin er skráð 1.017,9 m² að stærð.
- Eignin er í einkasölu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.