Fasteignaleitin
Skráð 11. nóv. 2026

Heiðarvegur 28

EinbýlishúsAusturland/Reyðarfjörður-730
184.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
515.481 kr./m2
Fasteignamat
65.900.000 kr.
Brunabótamat
92.250.000 kr.
Byggt 2004
Garður
Pallur
Bílskúr
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2274171
Landnúmer
196658
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta 2026
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan Byggð 464-9955

Heiðarvegur 28

Um er að ræða glæsilegt og vel við haldið 5 herbergja einbýlishús úr timbri á einni hæð með bílskúr á Reyðarfirði. Skráð stærð skv. HMS er 184,1 fm. og þar af er bílskúr 24,9 fm.. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum og hefur fengið gott viðhald frá upphafi. Húsið er bjart og rúmgott, með góðu skipulagi og vönduðum innréttingum. Gólfhiti er í húsinu.
 
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu og sólskála. Þá fylgja eigninni bílskúr og ca. 15 fm. geymsluskúr á verönd. Gott geymslupláss er í húsinu en geymsluloft er yfir stórum hluta íbúðar auk þess sem geymsluloft er yfir bílskúr.
 
Forstofa er björt með gráum flísum og þar er góður fataskápur. Inn af forstofu er gengið inn í rúmgott þvottahús sem er með nýlegri hvítri IKEA innréttingu og þar er pláss fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Í þvottahúsi er hleri þar sem gengið er upp á geymsloft úr fellistiga.
Eldhús er mjög rúmgott og vel skipulagt, með nýlegri brúnni og hvítri innréttingu frá HTH og vönduðum eldhústækjum frá AEG. Í innréttingu er bæði bakaraofn og combiofn í vinnuhæð. Í eldhúsi er eyja með helluborði sem skapar góða vinnuaðstöðu. Í eldhúsi er innbyggður ísskápur og við hlið hans er innbyggður frystir, hvor um sig ca. 170 cm. á hæð. Parket er á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóra timburverönd. Á veröndinni stendur geymsluskúr sem er einangraður, flísalagður og með rafmagni.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með parketi á gólfi. Fataskápar eru í þremur herbergjanna og úr hjónaherbergi er útgengt á veröndina.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er mjög rúmgóð walk-in sturta, brún innrétting frá HTH, handklæðaofn, upphengt salerni og gluggi með opnanlegu fagi.
Snyrting er flísalögð í hólf og gólf með lítilli innréttingu frá HTH. Þar er upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Sólskáli er á veröndinni og nýttur sem notalegt pottahús með heitum rafmagnspotti. Þar er stór rennihurð sem hægt er að opna.
Bílskúr er flísalagður og þar er rafmagnsdrifin innkeyrsluhurð. Í bílskúr er hleri þar sem gengið er upp á geymsluloft. Innst í bílskúr er geymsla.

Einstaklega snyrtileg og rúmgóð fjölskyldueign þar sem mikið hefur verið lagt í endurbætur gegnum árin og góða aðstöðu, jafn innan dyra sem utan. Rúmgóð herbergi, gott geymslupláss og glæsileg útiaðstaða.
 
Annað:
-Gler í stofugluggum og svalahurð endurnýjað 2026
-Eldhús endurnýjað 2022
-Baðherbergi og snyrting endurnýjað 2023
-Nýtt parket og loftefni 2023 
-Inntak fyrir hitaveitu til staðar í bílskúr
-Rafhleðslustöð

ATH. grunnmynd hefur verið breytt af fasteignasala miðað við núverandi skipulag eignar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2004
24.9 m2
Fasteignanúmer
2274171
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.550.000 kr.
BYGGÐ
http://www.byggd.is

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðargata 6
Heitur pottur
Skoða eignina Hlíðargata 6
Hlíðargata 6
740 Neskaupstaður
186,8 m2
Einbýlishús
524
363 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarvegur 12
Skoða eignina Heiðarvegur 12
Heiðarvegur 12
730 Reyðarfjörður
182,4 m2
Einbýlishús
614
328 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hæðargerði 29b
Á einni hæð
Hæðargerði 29b
730 Reyðarfjörður
191 m2
Einbýlishús
524
390 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 9
Bílskúr
Skoða eignina Hulduholt 9
Hulduholt 9
603 Akureyri
180,4 m2
Raðhús
513
Fasteignamat 89.250.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin