Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2026

Strandvegur 14

RaðhúsSuðurland/Vík-870
76.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
742.820 kr./m2
Fasteignamat
52.500.000 kr.
Brunabótamat
39.000.000 kr.
Mynd af Rúnar Þór Árnason
Rúnar Þór Árnason
Löggiltur fasteignasali
www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
Byggt 2018
Garður
Pallur
Sturtuklefi
Á einni hæð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2367997
Landnúmer
226023
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Sagt í lagi
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
Rafmagnskynding/hitakútur
Inngangur
Tveir inngangar
Helgafell fasteignasala kynnir til sölu bjart og vel skipulagt 76,6 m² raðhús með tveimur svefnherbergjum við Strandveg 14 í Vík í Mýrdal.

Eignin er byggð árið 2018 og býður upp á notalegt alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast á skemmtilegan hátt. Stórir gluggar veita góða birtu og úr stofu er gengið út á timburverönd við grasflöt.

Helstu kostir eignarinnar:
Tvö svefnherbergi.  Bjart og opið alrými.  Útgengi úr stofu á verönd. Gólfhiti í anddyri og baðherbergi. Sér þvotta- og geymslurými með góðu hilluplássi. Útiskúr á lóð um 10fm.

Eignin skiptist í: Anddyri, eldhús, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvotta-/geymslurými.  Geymslu/vinnuskúr um 10fm. á lóðinni.

Nánari lýsing:
Anddyri:  
Komið er inn í flísalagt anddyri með gólfhita. Þar er fataskápur með rennihurðum og spegli.
Eldhús: Eldhúsið er opið við borðstofu og stofu. Innrétting er með gráum neðri skápum og efri skápum í viðarlit, góðu vinnuplássi og innbyggðum ofni. Parket er á gólfi.
Stofa og borðstofa: Bjart og notalegt alrými með parketi á gólfi og góðu rými fyrir bæði setustofu og borðstofuborð. Stórir gluggar hleypa inn mikilli dagsbirtu og úr stofu er útgengt á verönd.
Svefnherbergi:
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og stórum fataskáp með rennihurðum.  Barnaherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt á gólfi og að hluta á veggjum. Þar eru sturtuklefi, upphengt salerni og vaskur með skúffuinnréttingu og spegli yfir. Gluggi er á baðherberginu og gólfhiti.
Þvotta- og geymslurými:  Sér rými með flísum á gólfi, aðstöðu fyrir þvottavél og góðu hilluplássi. Hitakútur er í rýminu.
Upphitun: Gólfhiti er í anddyri og baðherbergi. Að öðru leyti er íbúðin upphituð með rafmagni, hitakútur og ofnakerfi.
Húsið og útisvæði:  Samkvæmt HMS er húsið byggt úr timbri árið 2018. Að utan er það með dökkri klæðningu. Við stofu er timburverönd og grasflöt sem skapa skemmtilega aðstöðu til útiveru.  Á lóðinni er geymslu/vinnuskúr sem fylgir íbúðinni.  Í dag er fallegt steinasafn í skúrnum.

Skráning samkvæmt HMS:
Birt stærð: 76,6 m². 
Fasteignamat 2026: 52.500.000 kr.
Fyrirhugað fasteignamat 2027: 52.200.000 kr.
Brunabótamat samkvæmt yfirliti: 40.350.000 kr.

Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Rúnar Þór Árnason, löggiltur fasteignasali
Sími: 775 5805  Netfang: runar@helgafellfasteignasala.is
Helgafell fasteignasala – sími 566 0000
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/12/202441.700.000 kr.50.000.000 kr.76.6 m2652.741 kr.Já
03/08/201817.000.000 kr.28.900.000 kr.76.6 m2377.284 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Elsugata 15
Á einni hæð
Skoða eignina Elsugata 15
Elsugata 15
815 Þorlákshöfn
97,9 m2
Raðhús
412
694 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Daggarvellir 4B
Opið hús:28. nóv. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Daggarvellir 4B
Daggarvellir 4B
221 Hafnarfjörður
89,4 m2
Fjölbýlishús
413
760 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 5
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Ásvellir 5
Ásvellir 5
221 Hafnarfjörður
93,6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðalækur 45
Kjallaraíbúð
Opið hús:29. nóv. kl 12:00-12:30
mx8a5749.jpg
Skoða eignina Rauðalækur 45
Rauðalækur 45
105 Reykjavík
81 m2
Fjölbýlishús
313
838 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin